Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Blaðsíða 10
Verkfall sjómanna
Ágrip af gangi mála i kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna
' Verkfalli o.
lauk með Tagasetningu
Verkfall félaga í Sjómannasambandi ís-
lands og Vélstjórafélags íslands kom til
framkvæmda klukkan 23 og hjá Far-
manna- og fiskimannasambands íslands
á miðnætti þann 15. mars. Einni mínútu
yfir miðnætti gekk svo i gildi verkbann
sem útgerðarmenn settu á sjómenn. Þá
höfðu samningar verið lausir frá því í
febrúar árið 2000 og allar tilraunir til að
ná samkomulagi reynst árangurslausar.
Deilu sjómanna og útvegsmanna hafði
verið vísað til sáttasemjara, en mikið bar
í milli. Forystumenn sjómanna lýstu því
yfir að verkfallið væri neyðarúrræði þar
sem útvegsmenn þverskölluðust við rétl-
látum kröfum sjómanna. Forystumenn-
irnir sögðust vera svartsýnir á skjóta
lausn deilunnar en framkvæmdastjóri
LÍÚ kvaðst hafa trú á því að það mætti
semja.
Lög með hraði
Góð loðnuveiði var þegar verkfallið
hófst og einnig var góð þorskveiði á ver-
tíðarsvæðinu frá Breiðafirði suður um og
austur að Flöfn. Um 150 þúsund tonn
voru eftir óveidd af loðnukvótanum.
Sjávarútvegsráðherra og forsætisráðherra
lýstu því yfir að þeir ætluðu ekki að
skipta sér af deilunni. Áfram var setið á
samningafundum í Karphúsinu.
Um klukkan 15 þann 19. mars kallaði
sjávarútvegsráðherra fulltrúa samtaka
sjómanna til sín og tjáði þeim að ríkis-
stjórnin myndi leggja fram frumvarp til
laga um að fresta verkfalli sjómanna til
19. apríl. Alþingi var svo kallað saman
klukkan 16.30, en samkvæmt áætlun átti
að vera nefndavika og því engir þing-
fundir. Þingmenn stjórnarnokkanna sam-
þykktu lögin um frestun verkfalls eftir að
sjávarútvegsráðherra hafði stytt gildis-
tíma þeirra til 1. apríl. Ráðherrann sagði
lögin sett til þess að skapa svigrúm fyrir
samningamenn sjómanna og útvegs-
manna til þess að þeir gætu ræðst áfram
við án þess að það kosti þjóðarbúið
milljarða. Samtök sjómanna mótmæltu
því harðlega að stjórnvöld skyldu enn og
aftur grípa inn í gerð kjarasaminga. Eng-
-‘ýayarútve
„v«nar ad samúj-"............
an liiíf;,.
in önnur stétt hafi þurft að þola slíkt af
hálfu stjórnvalda.
Gekk hvorki né rak
Verkfallið hófst að nýju að kvöldi 1.
apríl. Um það leyti komust þær fréttir á
flot að flötur væri kominn á verðmynd-
unarmálin í viðræðum deiluaðila. Þær
fréttir reyndust lítt á rökum reistar. Full-
trúi útvegsmanna tilkynnti á fundi ríkis-
sáttasemjar að ekki væri lengur óskað
eftir viðræðum við fulltrúa Farmanna- og
fiskimannasambandsins í yfirstandandi
kjaradeilu. Áður höfðu útvegsmenn kraf-
ist þess að fundað væri sameiginlega með
fulltrúum samtaka sjómanna og hafði
það verið gert.
Dagarnir liðu en ekkert miðaði í sam-
komulagsátt. Þann 19. apríl slitnaði upp-
úr viðræðum eftir að útvegsmenn lögðu
fram tilboð sem fól í sér að verðmyndun-
armálin yrðu í mun verri stöðu en þau
voru 1995. Sjávarútvegsráðherra sagði
engar fyrirætlanir um inngrip í deiluna af
hálfu stjórnvalda. Sáttafundur var næst
haldinn 24. apríl en hann varð árangurs-
laus. Skipstjóra- og stýrimannafélagið
FRÉTTIR
náisf
Fraxnkvæmdastjáí^Bnmba^
'rkfallí I
Oskiljanlegt
“B'Wirul,
verkfar
v:lleS niörk
MonruntJaAá.'Jim .Snurt
Togari tH sólu
Þorsteim Bakfvtnssori - góö sökJ-
S3T3 aö mati forstjórans.
Samherjaforstjórí:
Hótar að
selja togara
„Samheoi veitir 25-» mill)ónum
krfmtt * «/*irhrtrx> «* "*
' ' <VHr w .
í e»r til ad m/ílnjH-ia frumvarpi om ad afnrnu vtrfcfaJI tjómanna. Við dyr AlþinffÍHhiítw-
r upp og hrópuðu: „Víð víljum samninjj;a, við viljum fáað srmja í friði."
tn á mótmælafundi við Aljþingishúsið
„Við mótmælum valdníðslu
stjórnvalda á sjdmönnum“
10 - Sjómannablaðið Víkingur