Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Blaðsíða 67
Hilmar Snorrason skipstjóri
Utan úr
heimi
Dómar falla
Skipstjórinn á olíuskipinu Jessica sem strandaði á Galapagos-
eyjum í janúar sl. og varð þess valdandi að 800 tonn af olíu
láku i sjóinn var dæmdur í 90 daga fangelsi og sviptingu rétt-
inda af dómstólum á eyjunum. Skipstjórinn Tarquino Arevalo
sagði fyrir réttinum að hann lýsti sig ábyrgan fyrir strandi skips-
ins en ekki á þeirri mengun sem það olli. Hann var engu að
síður dæmdur fyrir mengun auk þess að hafa brotið fjölda laga,
ekki verið með öryggisatriði í lagi um borð í skipi sínu og að
hafa verið á sigbngu um hafsvæði sem krefðist nákvæmi í sigl-
ingu án þess að hafa kveikt á ratsjá. Eins og hefur komið í
fréttum fjölmiðla reyndist ekki unnt að ná þessu 2000 tonna
skipi af strandstað.
Enn af laumufarþegum
Tveir munaðarleysingjar, 12 og 14 ára, fundust um borð í
stórflutningaskipinu Patria i höfninni í Bilbao í lok april s.l.
Tókst þeim að komast um borð í skipið meðan það lestaði í
höfn í Ghana. Ákveðið var af spænskum yfirvöldum að leyfa
þeim að vera á Spáni þar til þeir ná 18 ára aldri og var þeim
komið fyrir á munaðarleysingjahæli. Mikið hefur verið unt
laumufarþega um borð í skipum sem koma til hafnar í Bilbao
það sem af er þessu ári en laumufarþegar hafa fundist í 8 skip-
um sem þangað hafa komið.
Ólöglegir innflytjendur
í janúarmánuði fundust 644 ólöglegir innflytjendur í ferjum
P&O Stena skipafélagsins við öryggiseftirlit í höfninni Calais og
130 í Sea France. Þessi mikli fjöldi ólöglegra innflytjenda sem
skipafélagið fann við reglubundið eflirlit hefur valdið miklum á-
hyggjum og sýnir enn frekar þá miklu innreið sem á sér stað
inn í Evrópu af slíku fólki.
Ekki réttir pappírar
Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) hefur hrundið í fram-
kvæmd rannsókn á útbreiðslu falsana á skírteinum sjómanna en
54 aðildaríkja stofnunarinnar hafa tilkynnt um rúmlega 12600
fölsuð atvinnuskírteini sem tekin hafa verið úr umferð.
Vélastærðin ræður ferðinni
Lykilinn að því að gámaskip sem geta borið meira en 10.000
gámaeiningar (TEU) virðist vera vélaraflið sem slík skip þurfa.
Stærstu vélar sem þegar eru til eru 97.000 bremsuhestöfl (bhp)
sem gætu gefið 9.000 teus skipi gang upp á 25 hnúla en það er
sá ganghraði sem gámaskipin þurfa í dag til að vera samkeppn-
isfær á markaði. MAN B&W eru að hanna nýja vél, K98MC, en
sú vél er 14 strokka og eru þeir mun stærri en áður hefur
þekkst. Gert er ráð fyrir að þessi vél muni skila 109.000 bhp
sem ættu að gefa 10.000 TEU skipi 25 mílna ferð. Annar kost-
ur er þó í stöðunni en það er að hafa slíkt skip tveggja skrúfu,
með tvær 8 strokka vélar með samtals 125.000 bhp en slíkur
kostur myndi verða mjög óhagstæður sökum mikils olíukostn-
aðar.
Styrkja skipasmíðar
Það hlaut að koma að því að eitthvað myndi gerast í málefn-
um skipasmíðaiðnaðarins. Nú er Evrópuráðið að íhuga að
styrkja evrópskar skipasmíðar um 21% til að þær verði sam-
keppnishæfar við verðlag í Kóreu. Þetta verður kannski lil þess
að hægt verði að smíða íslensk skip i Evrópu á nýjan leik.
Mælingar skipa skapa hættu
Hollenskir sérfræðingar hafa látið í ljós áhyggjur sínar yfir
þeim mælinga og hleðslureglum sem Alþjóðasiglingamálastofn-
unin og Evrópuráðið hafa sett en þeir telja að þær hafi öfug á-
hrif á hönnun skipa. Benda þeir á að til þess að draga megi úr
tonnastærð gámaskipa eru allt of mörgum gámum ætlað að vera
komið fyrir á þilfari. Löng og mjó skip eru dæmd til að velta
mikið og lítill bakki gerir það að verkum að skipin eru stöðugt
að taka inn sjói á bakka. Stórflutningaskipin eru byggð bakka-
laus, gámar eru hafðir án sjóbúnaðar og svo eru tveggja botna
olíuskip einnig áhyggjuefni þeirra hollensku.
Reyna að bæta ástandið
Hondurasfáninn hefur ekki verið hátt skrifaður á síðum hafn-
arríkiseftirlitsins og er jafnframt neðst á svarta lista Alþjóðasigl-
ingamálastofnunarinnar. Nú hafa menn þar í landi tekið til
hendinni og ætla að reka af sér þetta slyðruorð að vera rusla-
kista heimsflotans og þá lélegasti siglingafáni heirns með því að
strika skip út af skipaskrám sínum sem ekki fullnægja lág-
markskröfum um öryggi. Samtals hafa 1500 skip verið strikuð
út af skipaskránni á síðustu 18 mánuðunt og er það nærri
helmingur heildarflota landsins. Skipin sem strikuð voru út
voru flest orðin mjög gömul eða þá að ekki höfðu verið greidd
tilskilin gjöld af þeim en slík skip voru gjarnan tengd glæpa-
samtökum. Nú er telur floti Honduras 1900 skip.
Nýji Smyril verður hið glœsilegasta skip.
Nýr Smyril
Það er ekki að spyrja að frændum vorum Færeyingum. Þeir
eru að láta smíða nýja Norrænu en Strandfaraskip Landsins,
sem eiga Smyril sem áður sinnti siglingum Norrænu, hyggja
einnig á nýsmíði. Það er Smyril sem á að skipta út fyrir nýja
skipinu en síðan hann hætti siglingum til íslands hefur hann
verið i siglingum milli Þórshafnar og Suðureyja. Skipið sem til
stendur að byggja verður 135 metra langt og á að geta ílutt 200
bíla en farþegafjöldinn verður yfir sumartímann 975 farþegar og
á vetrartímanum 800 eða sami fjöldi og sá gamli getur flutt.
Verið er að leita tilboða í smíði skipsins bæði í Evrópu, Austur-
löndum fjær og svo að sjálfsögðu í fyrirheitnalandi skipasmíð-
anna Kína. Systurskip Smyrils, Teistin, var selt árið 1996 til
Ítalíu og þá er bara að sjá hvert gamli Smyril fer.
Gleymdu að skoða launin
EuropeAid Co skrifstofa Evrópuráðsins hefur átt í erfiðleikum
með að gera grein fyrir því að hafa verið með á leigu llutninga-
skip þar sem áhöfninni voru greidd laun sem voru undir lág-
markslaunum ITE Það voru ITF menn sem upplýstu um málið
en þeim þótti það stríða á móti þeirri stefnu sem Evrópuráðið
hefur í gæðamálum útgerða kaupskipa en skipið sem um ræddi
var notað til flutninga á hjálpargögnum frá Evrópuráðinu til
Bangladesh en svo virðist sem að sú hjálp hafi átt að komast á
sem ódýrasta hátt til síns heirna. Það virðist vera sama hvaða
loforð og stefnur eru settar, þær eru brotnar um leið og menn
sjá einhverja peninga í sigtinu.
Sjómannablaðið Víkingur - 67