Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Blaðsíða 36
Fiskifrœði
jæða og
hrygning
þorsks
Líffræði þorsksins er fiskimönnum
afar áhugaverð. Þess vegna vakna marg-
ar spurningar, sem snerta atferli og eig-
inleika þorsksins. Til að fá svör við fá-
einum spurningum fór Farmanna- og
fiskimannasamband íslands þess á leit
við Hafrannsóknastofnun að hún svar-
aði atriðum sem gjarnan bera á góma í
umræðu um þennan merkilega fisk.
Hér á eftir er gerð grein fyrir þeim
spurningum og svörum sem Hafrann-
sóknastofnun tók góðfúslega saman
fyrir Farmanna- og fiskimannasamband
íslands.
Náttúrulegur dánarstuðull, sem
Hafrannsóknastofnunin notar við
mat á veiðistofni þorsks og ann-
arra helstu nytjastofna
la) Hvernig eru stuðlarnir metnir?
Flestar þær aðferðir sent notaðar eru
við stofnmat í dag meta heildardauðann
(Z) úl frá afföllum frá einu ári til þess
næsta. Skiptingin milli fiskveiðidauða og
náttúrulegs dauða er hins vegar vandá-
kvörðuð. Forsenda þess að hægt sé að
meta náttúrulegan dauða er sú, að sókn í
eldri hluta stofnsins sé lítil, þ.e.a.s. að
náttúrulegur dauði sé verulegur hluti
heildardauða. Jón Jónsson fiskifræðingur
skoðaði hvernig heildardauði breyttist
með sókn og fékk út þá niðurstöðu að
heildardauði myndi verða nálægt 18%
við enga sókn, sem þannig er jafn nátt-
úrulegum dauða.
lb) Hvaða töluleg gögn eru notuð við
matið?
Mat Jóns á fiskveiðidauða byggir á
talningu gotbauga. Því nær þetta mat á
náttúrulegum dánarstuðli til kynþroska
hluta stofnsins. Á tímabilinu sem Jón
skoðaði (1930-1964) var sókn minnst í
seinni heimstyrjöldinni og er niðurstað-
an því mest lýsandi fyrir það tímabil.
Ljósmynd Jón Páll ásgeirsson
Sóknin var reiknuð út frá sókn breskra kenna stórum selastofnum um en ekkerl
togara á íslandsmiðum á sama tímabili. er sannað í þeim efnum.
lc) Er sami stuðull notaður fyrir alla
aldursflokka?
Náttúrulegur dauði er samheiti yfir
marga þætti, s.s. dauða af völdum afráns
(m.a sjálfráns), sjúkdóma o.fl. Sumir
vísa í þetta sem dulinn dauða og bæta þá
við dauða af völdum veiðarfæra (-
möskvasmugi) og brottkasti. Náttúruleg-
ur dauði er háður stærð (aldri) fisks.
Hjá yngri fiski sem ekki er kominn inn i
veiðina, er afrán mikið og er sjálfrán
væntanlega töluverður hluti. Sjálfrán á
eldri en 3 ára þorski er hverfandi. Aðrir
mikilvægir ræningjar eru m.a hvalir og
selir. Hjá elsta fiskinum er dauði af völd-
um afráns frekar lítill en hrygningar-
dauði er ekki útilokaður. Vísbendingar
eru um að hann aukist með stærð eftir
að fiskurinn hefur náð 110-120 cm. Er
það eðlilegt þvi stærsti fiskurinn virðist
leggja langmest í hrygninguna. Að fram-
ansögðu er líklegt að gildi það sem notað
er (0.2) sé vanmat fyrir yngsta fiskinn og
einnig fyrir stærsta fiskinn. Hins vegar
gæti það verið ofmat fyrir náttúrulegan
dauða hjá millistærð af þorski.
ld) Hver er náttúrulegur dánar-
stuðull fyrir stofnmat á þorski í Noregi,
Færeyjum og austurströnd Kanada?
í stofnmati þorsks á íslandi er gildið
0.2 notað fyrir náttúrulegan dauða á öll-
um aldursflokkum í veiðinni. Sama gildi
er notað í Barentshafi, í Norðursjó og við
Færeyjar. Sama á við um flesta þorsk-
stofna við Kanada með þeirri undantekn-
ingu, að komið hefur í ljós að náttúruleg
afföll Labradorsstofnsins hafa verið hærri
á tíunda áratugnum en áður. Sumir
Fæða þorsks
Þorskstofninn þarf mikla fæðu og er
fæðuþörfin að sjálfsögðu háð stærð
stofns en einnig umhverfisaðstæðum eins
og hitastigi. Hægt er að meta heildar-
fæðuþörfina út frá tilraunum í eldisstöð.
Að sjálfsögðu verður þó að hafa alla fyr-
irvara á að yfirfæra tilraunir í eldi á nátt-
úruna. Mat út frá eldistilraunum Qones
1978) bendir til þess, að fæðuþörf þorsk-
stofnins hafi verið milli 1.5 og 3 milljón-
ir tonna á ári á árunum 1982-2000. Mæl-
ingar byggðar á magasýnum og melting-
arhraðalíkönum gefa svipaða niðurstöðu.
2a) Hve hátt hlutfall af fæðunni er
loðna?
Hlutdeild loðnu í fæðu þorsks er áætl-
uð um 35%. Hlutdeildin er breytileg frá
ári til árs, háð stærð og göngum loðnu-
stofns. Þessar niðurstöður byggja á
magasýnum en einnig má benda á að
svipað hlutfall fæst, þegar skoðuð eru á-
hrif loðnu á vöxt þorsks. Vöxtur þorsks
(í kg) virtist minnka um 30% þegar
loðnustofninn var í lægð árin 1981 og
1982. Loðna er um 50% af fæðu í maga-
sýnum, sem safnað hefur verið af Haf-
rannsóknastofnuninni en söfnunin er
rnikil i mars þegar loðna er sérlega að-
gengileg víða við land. í stuttu máli
skiptir loðnan miklu máli fyrir þorskinn
og þorskurinn hefur töluverð áhrif á
loðnustofninn.
2b) Hve hátt hlutfall af fæðunni er
rækja?
Rækja er að meðaltali um 10% af fæðu
þorsks. Er þá átt við alla rækjustofna við
36 - Sjómannablaðið Víkingur