Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Blaðsíða 5
Lengra
inn í ongstrætið
Enn einu sinni reyndust útvegsmenn ófáanlegir til að
gera nýja kjarasamninga við sjómenn. Enn einu sinni
sátu þeir eins og hundar á roði vikutn og mánuðum
saman og neituðu öllum kröfum sjómanna. Útvegs-
mönnum nægir ekki að ráða yfir tniðunum og skipun-
um. Þeir vilja líka ráða kjörutn sjómanna. Enn einu
sinni kom ríkisvaldið til skjalanna og svipti sjómenn
með lögum þeitn sjálfsögðu mannréttindum sem samn-
ingsrétturinn er. Nú skal skipaður gerðardómur til að
kveða á um kaup og kjör sjómanna á fiskiskipum. Full-
trúum sjómanna er samkvæmt lögunum tryggður réttur
til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við
gerðardóminn. Elins vegar er það undir gerðardóminum
komið hvort hann tekur tillit til þeirra sjónarmiða eða
ekki. Sú staðreynd blasir við, að ríkisstjórnin hefur skip-
að svo fyrir að þrír rnenn sem Hæstiréttur tilnefni skuli
á fjórum vikum afla allra gagna og taka ákvörðun um
hvernig kjaramálum fiskimanna verði háttað. Allt frá
verðmyndun afla og mönnunarmála til afmarkana á
helgarfríi fiskimanna á netaveiðum. Eað er ekki til lítils
ætlast.
Fulltrúar útvegsmanna sýndu rnikla hörku og óbil-
girni í samningaviðræðunum við sjómenn og hjá þeirn
örlaði ekki á vilja til samninga. Þegar ljóst var að þeim
tækist ekki að beygja Farmanna- og fiskimannasam-
bandið hófu þeir persónulegar árásir á forseta þess og
lítilsvirtu þar með sambandið. Þeir sem eiga aðild að
FFSÍ þurfa ekki að gera sér rellu yfir þeim illsökum sem
framkvæmdastjóri FIÚ og fleiri á þeim bæ kusu að troða
við Grétar Mar Jónsson. Þá fyrst þurfa menn að hafa á-
hyggjur þegar og ef FÍÚ lýsti yfir sérstakri ánægju sinni
tneð forseta Farmanna- og fiskimannasambandsins! En
hvorki lög frá Alþingi né persónulegar svívirðingar leysa
hinar langvinnu deilur sjómanna og útvegsmanna.
Vandanutn er bara enn einu sinni ýtt á undan sér. Eins
og Grétar Mar Jónsson bendir á í viðtali hér í blaðinu
eru engar líkur á að gerðardómur leysi varanlega helstu
ágreiningsmál í deilu sjómanna og útgerða. Menn fara
lengra inn í öngstræti og sitja svo uppi með enn stærri
vanda. Meðan deilan um verðmyndun afla er óleyst
verður enginn friður.
Scemundur Guðvinsson
Úlgcfandi: Farmanna- og fiskiinannasamband íslands,
Borgartúni 18, 105 Reykjavík.
Afgreiðsla og áskrift: sími 562 9933
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sæmundur Guðvinsson,
sími 868 2159, netfang sgg@mmcdia,is.
Auglýsingastjóri: Sigrún Gissurardóttir, sími 587 4647
Ritnefiul: Benedila Valsson, Eiríkur Jónsson, Hilmar Snorrason
Forseti FFSÍ: Grctar Mar Jónsson
Framkvæmdastjóri: Benedikt Valsson.
Uinbrot, filinuvinnsla, prcntun og bókhand: Grafík
Aðildarfclög FFSÍ: Félag íslenskra skipstjórnarmanna, Skipstjórafélag Norðlendinga,
Fclag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta, Félag matreiðslumanna,
Skipstjóra- og stýrimannafélögin: Aldan, Reykjavík; Bylgjan, ísafirði; Sindri,
Neskaupstað; Verðandi, Vestamannaeyjum; Vísir, Suðurnesjum; Ægir, Reykjavík.
Blaðið kemur út fjóruin sinnum á ári.
I Forsiðumyndina tóh I Jón Páll Ásgeirsson
6-15 Umfjöllun um verkfall sjómanna og rætt við Grétar Mar Jónsson og Sævar Gunnarsson
16-17 Pistill Þráins Bertelssonar
17 Magnús Jónsson veðurstofustjóri segir frá því hvernig sjóveðurspá verður til
24-29 Magnús Þór Hafsteinsson fiskifræðingur og fréttamaður í opinskáu viðtali
32-35 Viðtal við Hrafn Ragnarsson skipstjóra frá Ólafsfirði
36-37 Spurningar FFSÍ og svör Hafrannsóknar- stofnunarinnar um líffræði þorsksins
38-43 Viðtal við Árna Vilhjálmsson prófessor og stjórnarformann Granda og Hvals hf.
44-46 Guðlaugur Gíslason skrifar um samkeppnis- stöðu kaupskipaútgerða
48-49 Sagt frá fyrsta starfsári Félags íslenskra skipstjórnarmanna
51-59 Svavar Sigmundsson nafnfræðingur skrifar um nöfn á íslenskum skipum og bátum
60-64 Smásagan íslenskt heljarmenni eftir J. Magn- ús Bjarnason
67-68 Utan úr heimi
70-79 Þjónustuefni og fleira
Sjómannablaðið Víkingur - 5