Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Blaðsíða 70
Pjónustusíður
Boðvídd býður fullkomin mœlitœki fyrir sjávarútxeg
Síritar á stærð við
Jón Ragnarssonframkvœmdastjóri Boðvíddar.
„Við sérhæfum okkur í mælitækjum og
síritum til eftirlits með hitastigi, rakastigi
og öðrum umhverfisþáttum sem þarf að
gæta að við vinnslu matvæla, þar á meðal
fisks. Það sem við höfum svo sérhæft fyr-
ir sjávarútveginn eru innrauðir eftirlits-
mælar til að mæla og gefa upplýsingar
um fitu, raka og prótein i fiskimjöli,”
sagði Jón Ragnarsson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Boðvíddar í Reykjavík.
„Þá er hægt að vera með í framleiðslu-
ferlinum þar sem verksmiðjunar geta
verið með frá einum upp í þrjá til fjóra
mæla við færibönd í hverri verksmiðju
eftir stærð verksmiðjunnar og stýrt
þannig vatnsmagninu í mjölinu. Með því
nýtist hráefnið betur og þess eru dæmi
að svona mælar borga sig upp á einni
vertíð ef rétt er staðið að málum. Það
sem er erfiðast að mæla er fitan og
próteinið. Rakann er auðveldara að mæla
en það skiptir miklu að einn og sami
mælirinn gefi upplýsingar um þessi þrjú
höfuðgildi í mjölinu. Menn geta sett
þetta inn á skjámyndakerfi í verksmiðj-
unum og fylgst þannig grannt með þess-
um þáttum. Hraðfrystistöðin á Þórshöfn
er með tvo svona mæla og ísfélagið er
með einn mæli í verksmiðjunni í Krossa-
nesi. Þá er fóðurverksmiðjan Laxá með
einn mæli á rannsóknarstofu sinni,”
sagðijón ennfremur.
Að sögn Jóns er er nákvæmni mælanna
mjög góð og notendur ánægðir með hvað
auðvelt er að fylgjast með fitunni og
próteini með notkun mælanna.
„Síðan höfum við líka verið með staka
sírita sem hægt er að geyma hvar sent er,
í kælum, frystum eða körum. Þetta er til
dæmis gott fyrir smábátasjómenn með
tilliti til rekjanleika vörunnar. Ef upp
koma vandamál geta komið upp deilur
um hvar varan skemmdist en þeir sem
hafa síritann geta sannað sitt mál ef allt
er í lagi hjá þeim. Það er hægt að fá sírita
á stærð við tappa á kókflösku sem getur
farið á þúsund feta dýpi og mælt í tvö til
þrjú ár án þess að minnið fyllist. Þetta er
nauðsynlegt tæki fyrir þá sem vilja hafa
gæðamálin í góðu lagi án þess að leggja
út i of miklar fjárfestingar, svo sem trillu-
sjómenn og minni útgerðir,” sagði Jón
Ragnarsson.
www. b © dvidd. is
Boðvídd ehf
SuðurlandsbrautlO
Sími: 581-2222
Fax: 581-2226
bodvidd@bodvidd.is
70 - Sjómannablaðið Víkingur