Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Blaðsíða 75
STG-ísvélar gera
það gott í Fœreyjum
ÉtAfi
UO
6
Gel
icr
MULTI
ogþun
samti
multi-ice
Þykkur og þunnur
mjúkís sar*í~,i<^
vél!
einn
ur
Fjölískerfi
í stærsta
ísfisktogarann
„Við höfum verið hér í Færeyjum að
undanförnu þar sem sjávarútvegssýning
hefur staðið yfir. Jafnframt erum við
búnir að setja upp mjög stórt og full-
komið fjölískerfi í stærsta og öflugasta
ísfisktogara Færeyinga og það er rnikill
sigur fyrir okkur strákana að fá það verk-
efni,” sagði Snæbjörn Tr. Guðnason
framkvæmdastjóri STG-ísvéla þegar blað-
ið náði símasambandi við hann í Færeyj-
um.
„Það er verið að klára að skvera skipið
til núna og þetta vakti gríðarmikla at-
hygb hér á sjávarútvegssýningunni. Við
förum svo fyrsla túrinn með skipinu inn-
an skamms. Það er búið að keyra kerfið
fram og til baka og það virkar hundrað
prósent. Þeir eru hins vegar að taka allt
skipið hressilega í gegn og því er það
ekki farið út ennþá. En þarna erum við
búnir að setja upp kerfi sem býr til þykk-
an og þunnan ís á sama tíma, sem er
okkar meginuppistaða í starfseminni,”
bætti Snæbjörn við.
Hann sagði að STG hefði verið með
sýningarvagn fyrirtækisins á sýningunni
með ískerfinu í og þetta hefði vakið at-
hygli og áhuga. Þar gætu menn séð kerf-
ið á fullri keyrslu og fengið að halda á
ísnum sem hún framleiðir. Þetta væri
silkimjúkur ís sem kældi allt að tíu sinn-
um hraðar en hefðbundinn ís. „Það er
mikils virði að geta boðið uppá þennan
möguleika. Eins og ég hef oft sagt við
kallana er ekki hægt að lýsa ilmi rósar-
innar, menn þurfa sjálfir að lykta af
rósinni. Svo vil ég bara bæta því við að
tankakerfið sem við erum með nær að
halda ísnum alveg eins og nýjum í meira
en sólarhring og það þykir saga til næsta
bæjar,” sagði Snæbjörn Tr. Guðnason.
Snæbjörn Tr Guðnason framkvœmdastjóri
STG isvéla við hinn fullkomna sýningarvagn
fyrirtækisins.
Rafvélaverkstseði
Rafvirkjaþjónusta
▼ Viðgerðir á mótorum
▼ Skipa- og verksmiðjuþjónusta
T Sérþekking og reynsla
▼ Heildstæðar lausnir
og valið er einfalt
Vatnagarðar 10 • 104 Reykjavík
S: 570-0000 • Fax: 570-0017 • www.volti.is
Sjómannablaðið Víkingur - 75
Þjónustusíður