Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 7

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 7
Tímarit Hins íslenska nátturufræðifélags Bylgjulengd- Wavelenght (pm) Greinihæfni - Resolution (m) 0,48-0,71 2,5 0,50-0,59 10 0,61-0,68 10 0,78-0,89 10 1,58-1,75 20 2. tafla. Bylgjulengdir og greinihæfni SP0T5- mynda. - Wavelengths and resolutíon of SP0T5. gervitunglinu eru fimm nemar sem skrá endurvarp frá yfirborði jarðar á mismunandi bylgjulengdum (2. tafla). Fjórir nemar skrá litrófsgögn, en einn nemi skráir svarthvít gögn. Þær bylgjulengdir sem notaðar voru í þessari rannsókn eru með 10 m upplausn. Endurvarp gróðurs er mjög frá- brugðið endurvarpi annars konar yfirborðs. Hæðir og lægðir ein- kenna endurvarpskúrfu gróðurs þar sem blaðgræna, litarefni, frumuuppbygging plantna og vatnsinnihald gegna lykilhlutverki. Bylgjulengdir sem þessir þættir hafa mest áhrif á eru því tilvaldar til gróðurgreininga (2. mynd). Þótt endurvarp einstakra fyrir- bæra geti tekið töluverðum breyt- ingum frá meðaltalinu koma helstu drættir endurvarps hverrar gerðar fram í kúrfunum.29 Aðferðir Við myndvinnslu var forritið Erdas Imagine frá Leica Geosystems not- að. Við flokkun í vistgerðir var reiknað samband endurvarps á öll- um litrófsbylgjulengdum tunglsins (2. tafla), sbr. Nagendra.15 Notuð var stýrð flokkun (e. supervised classifi- cation) og sjálfvirk flokkun (e. unsupervised classification). Við stýrða flokkun var jafngildislínuað- ferð (e. maximum likelihood) not- uð, þar sem dregnar eru nokkurs konar jafngildislínur umhverfis hvern flokk. Fyrir hverja myndein- ingu eru svo reiknaðar líkurnar á því að hún lendi í tilteknum flokki.2930 Við sjálfvirka flokkun var notuð Iterative Self-Organizing Data Analysis aðferð (ISODATA)29 sem felur í sér að notandinn velur hversu mörg prósent af myndein- ingum eiga að vera flokkuð þegar flokkuninni lýkur. I rannsókninni var miðað við að 99,8% myndein- inganna væru flokkuð. Með stýrðri flokkun eru endurvarpsgildin á mældum vettvangssniðum látin ráða flokkuninni en með sjálfvirkri flokkun er myndinni skipt niður út frá endurvarpsgildum í myndinni óháð vettvangssniðunum. I stýrðu flokkuninni voru vist- gerðasniðin af rannsóknarsvæðun- um tveimur staðsett á SPOT5- myndinni út frá GPS-hnitum. Forrit- ið var látið velja myndeiningar á hverju sniði sem einskonar sýnis- horn fyrir vistgerðina. Ljósmyndir af sniðunum voru jafnframt skoðað- ar til að tengja hverja vistgerð við gervitunglamyndina. Tölvan skráði upplýsingar um endurvarpsgildin á öllum bylgjulengdum fyrir hvern reit í svonefnda merkjaskrá (e. signature file). Gert var ráð fyrir að mynstur eða endurvarpsgildi sniða í sömu vistgerð væri svipað á öllum bylgjulengdum. Endurvarpsgildum sniða í sömu vistgerð var síðan steypt saman til að fá meðaltalsgildi fyrir vistgerðina og myndin flokkuð út frá þeim gildum. Tveimur snið- um var sleppt þar sem þau lentu í skugga og gáfu skert endurvarp. Ekki reyndist unnt að aðgreina eyði- melavist og grasmelavist út frá end- urvarpsgildum og var þeim því slegið saman í einn flokk, melavistir. Tölfræðileg aðgreining flokka út frá endurvarpsgildum var könnuð með „Transformed divergence"- reikniaðferð. Því hærra gildi sem samanburður tveggja flokka gefur, því meiri fjarlægð er á milli flokk- anna og meiri líkur á að flokkunin sé rétt.29 Einnig voru hnit endur- varpsgilda hverrar bylgjulengdar borin saman til að kanna á fljótleg- an hátt hvort og hvar flokkarnir sköruðust. Endurvarpsgildin voru einnig skoðuð á dreifiritum (e. scatter diagram) sem sýna dreifingu flokka miðað við endurvarpsgildi í allri myndinni.29 Við sjálfvirku flokkunina voru tekin út gróðurlaus svæði, svo sem vatn og jöklar. Því næst var flokkað í 90 flokka, en við flokkun yfirborðs lands á minni svæðum er algengt að byrja með 80-100 flokka í sjálfvirkri flokkun.31 Þá voru mælisnið af vett- vangi lögð ofan á flokkunina og hver flokkur ákvarðaður til vist- gerðar miðað við þau. Vettvangsgögn til sannprófunar I ágúst 2004 var farið á rannsóknar- svæðið á Vesturöræfum og Brúar- dölum og lögð út og mæld 130 2. mynd. Endurvarp mismunandi yfirborðs á bylgjulengdum 0,4-2,6 ym. Bylgjulengdir SPOT5-gervitunglsins eru afmarkaðar á myndinni (G = græn, R = rauð, NIR = nærinn- rauð, MIR = miðinnrauð) (endurvarpskúrfur teknar eftir Swain og Davis31). - Typical spectral reflectance curvesfor vegetation (green), soil (brown) and water (blue) (Adapted from Swain and Davis31). 75
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.