Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 56
Náttúrufræðingurinn
2. mynd. Gervitunglamynd af Skeiðarársandi þar sem rannsóknarsvæðin fjögur eru sýnd:
A er austasta svæðið, MS mið-suðursvæðið, MN mið-norðursvæðið og V vestasta svæðið.
Myndin er innrauð SPOT5 gervitunglamynd ©LMÍ (rautt=gróður) frá árinu 2002.
Svörtu línurnar sýna vegi og vegaslóða. - Satellite image of Skeiðarársandur showitíg the
location ofthe study sites. The order ofthe study sites is east (A), mid-north (MN), mid-
south (MS) and west (V). This is an infrared SP0T5 satellite image ©LMÍ
(red=vegetation) from 2002. The black lines represent roads and off-road trails.
Skeiðarársandur (1.000 km2) er lík-
lega stærsti jökulsandur jarðar nú á
dögum (Helgi Björnsson, Raun-
vísindastofnun Háskóla íslands,
munnleg heimild). Sandurinn er
aurkeila mótuð af straumvötnum
og jökulhlaupum, hallalítill og eins-
leitur á að líta.1 Einhver gróður hef-
ur líklega alltaf verið á sandinum og
vitað er að þar voru melhólar fyrir
aldamótin 1800.23 Flest bendir þó til
að sandurinn hafi verið lítt gróinn
en að gróður hafi tekið að breiðast
út eftir að jökullinn hopaði aftur
fyrir jökulgarða sína um miðja 20.
öld. Þá flæddi hlaupvatn ekki leng-
ur óhamið um sandinn heldur var
að mestu bundið við ákveðna far-
vegi þar sem skörð mynduðust í
jökulgarðana.1 Mestur hluti sands-
ins (70%) hefur enn mjög strjála
gróðurþekju (<10%) en 15-20%
teljast vel gróin (>50% gróðurþekja;
byggt á gögnum frá árinu 2002).45
Sandurinn er nú nýttur sem
sumarhagi fyrir rúmlega 180 lamb-
ær (Búnaðarsamband Suðurlands,
munnleg heimild) en beit getur haft
hamlandi áhrif á vöxt birkiplantna,
hindrað nýliðun og aukið afföll.6-7-8
Birki, gulvíðir (Salix phylicifolia L.)
og loðvíðir (S. lanata L.) hafa öll
numið land á Skeiðarársandi. Birki
er lykiltegund í mörgum íslenskum
vistkerfum og verður gjarnan ríkj-
andi á síðari stigum framvindu.91011
Það getur einnig numið land
snemma í frumframvindu9-11 og var
t.d. ein fyrsta háplöntutegundin
sem festi rætur á jökulaurum
Skaftafellsjökuls í Öræfum, skammt
frá Skeiðarársandi.9
Það sem ræður mestu um land-
nám plantna er fræregn og framboð
öruggra seta.12 Fræframleiðsla birkis
og spírunarhæfni geta verið mis-
munandi á milli ára13-14 og þar af
leiðandi magn og gæði fræregns.
Fræið þarf svo að lenda í öruggu
seti til að geta spírað15 en örugg set
eru blettir í umhverfinu þar sem
umhverfisaðstæður eru hagstæðar
fyrir uppkomu og afkomu kím-
plantna.12
Birkið er svo þétt á nokkrum
svæðum á sandinum að halda
mætti að því hafi verið sáð í stórum
stíl, en staðfest vitneskja um slíkt er
þó ekki til (Hálfdán Björnsson á
Kvískerjum, munnleg heimild). Það
er heldur ekki ólíklegt að birkið sé
sjálfsáð þarna þar sem stutt er í
víðáttumikið birkikjarr og skóg í
Skaftafellsþjóðgarði, m.a. Bæjar-
staðarskóg í Morsárdal.
í þessari grein er leitað svara við
eftirfarandi spurningum: Hvenær
hófst landnám birkis á Skeiðarár-
sandi? Er birki á Skeiðarársandi
fyrsta kynslóð landnema eða er
birkið farið að sá sér frá plöntum
sem áður hafa numið land á sand-
inum? Nemur birki land á
Skeiðarársandi jafnt og þétt? Hefur
sumarbeit sauðfjár á sandinum
áhrif á landnám og vöxt birkis?
Aðferðir
Rannsóknarsvæðið
Sumarið 2004 voru fjögur rannsókn-
arsvæði valin milli Gígjukvíslar og
Skeiðarár. Svæðin voru á bilinu
200-500 m2. Svæði A (austur), MN
(mið-norður) og V (vestur) voru í
NA-SV stefnu frá Skaftafellsheiði
með 5,6 km á milli svæða (2. mynd).
Svæði MS (mið-suður) var 650 m
sunnan við svæði MN eða um
miðjan sand. Svæðin voru valin í
mismikilli fjarlægð frá Skaftafells-
heiði þaðan sem líklegast er að fræ
berist. Norðaustanáttir eru ríkjandi á
sandinum á haustin (frá síðari hluta
september) (Veðurstofa Islands,
óbirt gögn), þegar birkifræ dreifast,
og það auk landfræðilegra aðstæðna
gerir það að verkum að birkiskógar
vestan við sandinn (svo sem Núps-
staðarskógur) eru ólíklegar fræupp-
sprettur á rannsóknarsvæðunum.
Gagnasöfnun
í júlí 2004 voru tveir til fimm 50*50
m reitir lagðir tilviljunarkennt út á
hverju svæði. Þéttleiki birkis var
reiknaður út frá talningum innan
reita. Urtak (fjöldi reita) réðst að
hluta af þéttleika birkis, þar sem