Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 66

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 66
Náttúrufræðingurinn 8. mynd. Öflugur náttsjónauki meö þak- prismum, Zeiss Victory B T* MT 8x56, „oröinn vinsæll hjá tófunæturveiðimönn- um" að sögn íslensks seljanda. Á nokkrum sjónaukum er skerp- an stillt fyrir hvort auga fyrir sig með því að snúa kvörðuðum stilli- hólkum á báðum augnglerjum, sem færa þau út eða inn. Þetta er ekki til trafala ef kíkinum er aðeins beint að fjarlægum hlutum, svo sem á sigl- ingu eða við stjörnuskoðun, auk þess sem slíkur kíkir er jafnan vatnsþéttur án frekari þéttibúnaðar. Einnig þarf að stilla sjónaukann fyrir fjarlægðina á milli augna at- hugandans með því að fella sjón- pípurnar sundur eða saman um hjarir á miðás tækisins þar til myndirnar úr sjónpípum kíkisins falla saman. Á mörgum kíkjum má lesa þessa stillingu - í millímetrum - af kvarða á milli augnglerjanna. Myndgæði og frágangur Hvað sem líður stækkun og ljós- styrk eru sjónaukar mjög misdýrir og sem fyrr segir fær kaupandinn oftast það sem hann borgar fyrir. Ákafur veiðimaður eða fuglaskoð- ari, ellegar yfirmaður á varðskipi, er líklegur til að gera meiri kröfur til sjónauka en maður sem aðeins bregður kíkinum upp nokkrum sinnum í sunnudagsbíltúrnum. Fyrst ber að nefna myndgæðin. Mest ber á ýmsum villum í einföld- um (ósamsettum) linsum eða illa unnum linsukerfum. Beinar línur virðast oft sveigðar, einkum við jaðra myndflatarins og er talað um „koddabjögun" eða „tunnubjögun" eftir því hvort hliðarnar í ferhyrn- ingi virðast svigna inn eða út á við. Eins ber á því að láréttar og lóðrétt- ar línur fást ekki skarpar samtímis (sbr. sjónskekkju í mannsauga), skerpa í jöðrum og miðju myndar fer ekki heldur alltaf saman eða punktar birtast með hala líkt og á halastjörnu. Við þetta bætast litvillur. Einfalt safn- eða dreifigler brýtur Ijós mis- mikið eftir bylgjulengd, rétt eins og prisma, þannig að rendur eða skörp birtuskil á fyrirmynd birtast sem lit- róf. Þetta er leiðrétt með samsettum safn- og dreifilinsum. Þokkalega lit- leiðrétt linsukerfi kallast „akrómat- ísk" en hin vönduðustu (og dýr- ustu) teljast „apókrómatísk". Ekki er hér allt talið, en að lokum skal nefnd skerpa eða greiningarhæfni kerfisins, sem er því meiri sem tveir punktar komast nær hvor öðrum áður en mynd þeirra rennur saman í einn. Skerpan er gefin upp sem sjónarhornið á milli punktanna og hún eykst að öðru jöfnu (hornið verður þrengra) með aukinni stækkun. Ekkert linsukerfi skilar full- kominni mynd. En með rétt sam- settum fræðilega reiknuðum kerf- um af vandlega slípuðum safn- og dreifiglerjum úr efni með mismun- andi brothlutfalli er hægt að halda villunum í lágmarki; einnig er dreg- ið úr ljóstapi og glýju frá endurkasti á mótum lofts og linsu- eða pris- maflata með því að húða fletina sérlegum efnum. í bestu nútíma- sjónaukum með fjölhúðuðum glerj- um komast allt að 95% ljóssins að augum athugandans. Áður en húð- un var tekin upp, sem var upp úr 1940, var ljóstapið um eða yfir 50%. Góður sjónauki þarf að þola hnjask. Minnsta hnikun á linsu eða prisma veldur bjagaðri eða tvö- faldri mynd. Samt þarf handkíkir helst að vera léttur og fara vel í hendi og auðvelt að koma fingrum að öllum stillihnúðum. Sjónauki sem notaður er í votviðri eða ágjöf verður að vera vatnsþéttur og sum- ir eru klæddir gúmlagi til varnar höggum, seltu og raka. Auk þess deyfir þannig lag skrjáf og þrusk frá kíkinum þegar hann rekst í hluti, eða svo er sagt í auglýsingum til að gylla þessi tæki fyrir veiðimönnum. Margir vandaðir handsjónaukar eru fylltir óvirku niturlofti (köfnun- arefni), sem kemur í veg fyrir að raki þéttist á linsum og prismum við snögg hitaskipti. Á tímum þeg- ar myndavélar þykja sjálfsagður hluti af farsímum þarf engan að undra að í boði eru sjónaukar með stafrænni myndavél. Enn hef ég ekki frétt af sjónauka í farsíma. UM HÖFUNDINN Ömólfur Thorlacius (f. 1931) lauk fil.kand.-prófi í líffræði og efnafræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 1958. Hann var kennari við Menntaskól- ann í Reykjavík 1960 -1967, Menntaskólann við Hamrahlíð 1967- 1980 og rektor þess skóla 1980-1995. Samhliða kennslustörfum hefur ömólfur samið kennslu- bækur og hann hafði um árabil umsjón með fræðsluþáttum um náttúmfræði í útvarpi og sjónvarpi. Hann var um skeið ritstjóri Náttúru- fræðingsins. PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR Ömólfur Thorlacius oth@intemet.is Hringbraut 50 107 Reykjavík 134
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.