Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 73

Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 73
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags gagnrýni undirritaðs lýtur að upp- röðun efnis í bókinni og kaflaskipt- ingu. Til dæmis má íhuga hvort efni það sem birtist í 7. kafla hefði ekki að skaðlausu verið hægt að setja sem undirkafla annarstaðar, ann- arsvegar undir sögu Hallormsstað- ar og hinsvegar í lok 1. kafla á eftir annarri umfjöllun um Lagarfljót. Einnig er álitamál hvort kaflinn um sögu skógræktar hefði ekki átt að koma í beinu framhaldi af sögu Hallormsstaðar, þar sem báðir þess- ir kaflar teygja sig lengra aftur en kaflinn um sögu skólanna og fjalla á sinn hátt báðir um búskap og aðra landnýtingu á Hallormsstað. Þessir annmarkar eru hins vegar ekki al- varlegir og mjög vel útfært efnisyf- irlit í upphafi bókar auðveldar les- anda að laga lestur sinn að því efni sem hann hefur mestan áhuga á sjálfur. Plöntunafna-, trjánafna-, manna- nafna-, örnefna-, tilvísana- og heim- ildaskrár í bókarlok og aðrar upp- lýsingar, svo sem jarðfræði-, forn- leifa-, útivistar- og staðháttakort, auka enn á gildi bókarinnar sem uppflettirits og fræðibókar. Hún er því ekki ritverk sem maður les að- eins einu sinni, heldur bók sem a.m.k. undirritaður hefur tekið fram aftur og aftur og flett upp í. Þetta er bók sem náttúruunnendur ættu ekki að láta ólesna. Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor í skógfræði LandbúnaðarMskóla íslands Útsýnifrá Ytra-Sandskeiði til Ormsstaða og Úthéraðsfjalla, úr bókinni Hallonnsstaður í skógum (bls. 213). Ljósm.: Hjörleifur Guttormsson. 141

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.