Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 16
Stærð
Paraðir karlar
—Stakir karlar
Karlar Ijíirri varpstað
■ Kvendýr
Dagar
6. mynd. Meðalstœrð karl- og kvendýra við kúadellur frá vorí, 17. apríl, og fram á haust,
17. nóvember, á Wirral, Cheshire, V- England 1979. Sami mœlikvarði á stœrð og á 4.
mynd. Pöruð karldýr voru tekin bæði af kúadellum og úr grasinu í kring. Marktœk
aukning er í stærð karldýra frá vori og fram í ágúst en síðan verða þeir marktækt minni
þegar komið er fram í október. Aberandi er hversu lítil karldýrin sem fundust fjarri
kúadellum eru og voru þau alltaf marktœkt minni en hin nema 12. júní. Kvendýrin voru
alltaf miklu minni en karldýrin og stœrð þeirra sveiflast mun minna. - Average sa.es in
HTL' of (from top to bottom): paired males, single males at pats, single males away from
droppings and females on and around cowpats from spring (17 April) till late autumn (17
November) 1979. Size of males increasesd significantly from April till August and
dropped in October. The females were always much smaller than the males and their size
fiuctuated much less (see Hrefna Sigurjónsdóttir 1980).
Stórar kvenflugur eiga fleiri egg (Parker
1970d) svo vænta má að náttúruval fyrir
stórum dætrum sé að verki. Simmons og
Ward (1991) álykta sem svo að kynval
fyrir aukinni líkamsstærð meðal karldýra
sé sterkara en náttúruval fyrir aukinni
stærð kvendýra.
Enginn vafi er á því að umhverfisáhrif,
sérstaklega þéttleiki lirfa og þar með
samkeppni um fæðu, ráða miklu um stærð
flugnanna. Þó misjafnt sé hversu mikið er
verpt í einstakar kúadellur (mykjan virðist
hafa mismikið aðdráttarafl) er ekkert sem
bendir til að kvenflugur velji varpstaði
m.t.t. þéttleika annarra kvenflugna. Það er
mín skoðun að stærðarbreytileiki hjá
mykjuflugunni skýrist að mjög litlu leyti af
erfðum og eru Simmons og Ward (1991)
sama sinnis.
ÁRSTÍÐABUNDNAR SVEIFLUR í STÆRD
Haustið 1978 og árið 1979 safnaði ég
ílugum í Englandi af kúadellum, í grasinu
í kringum þær og í limgerði og grasi þó
nokkuð fjarri kúnum. A Islandi var ílugum
safnað reglulega frá vori og fram á haust
1981. Niðurstöður frá Englandi (6. mynd)
sýndu að stærð karlflugna er mest seinni
hluta sumars en minnkar síðla hausts
(Hrefna Sigurjónsdóttir 1980). Á íslandi
eru flugur sem finnast síðla sumars að
jafnaði stærri en þær sem eru á kreiki fyrr
um sumarið (7. mynd) (Hrefna Sigur-
jónsdóttir og Sigurður Snorrason 1995).
10