Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 44

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 44
5. niynd. Berggangurinn. Fundarstaður afsteypanna er í klettinum efst til vinstri á myndinni. - The dyke and the „ tree cast-lava “ (upper left corner). Ljósm./Photo: Magnús A . Sigurgeirsson. 1936, Moore 1962). Trjábolaföreru algeng í tertíerum hraunlögum á Hawaiieyjum og hefur verið lýst þaðan (Walker 1995). Rannsóknir Walkers (1995) sýna að trjá- bolaförin eru með ýmsum halla í hraun- lögunum, allt frá láréttri stöðu í lóðrétta. í bergstálum er mun fátíðara að finna lóðrétt för en þau sem eru eilítið hallandi, eins og gefur að skilja. Þegar hraunlag með opn- um trjábolaförum á yfirborði hylst yngra hrauni má búast við að trjábolaafsteypur myndist þegar förin fyllast af bergbráð. A þennan hátt hefur myndun trjábolaafsteypa verið skýrð (Hyde 1951, Finch 1931, Bartrum 1925, Kreji-Graf 1936, Walcott 1900). Þó að þessi skýring eigi eflaust við í einhverjum tilvikum er ljóst að hún dugir skammt til að skýra myndun afsteypa sem finnast í neðri hluta þykks hraunlags og eru greinilega ekki tengdar yfirborði hraunsins, eins og raunin er í Skriðna- fellsnúpi. Þar þarf annarra skýringa við. Sérstaka athygli vekur, þegar trjábola- menjarnar í Skriðnafellsnúpi eru skoðað- ar, að afsteypurnar eru allar innan 15 m frá bergganginum en trjábolaförin hins vegar öll tjær. Afsteypurnar sem næstar eru ganginum stefna í flestum tilvikum hornrétt á hann, eða því sem næst. Eftir að ein þeirra hafði verið grafin fram kom í ljós að hún tengist honum beint (7. mynd). Telja verður líklegt að sama eigi við um hinar afsteypurnar, a.m.k. þær sem næstar eru ganginum. Þunnsneiðar voru skoðaðar úr hrauninu, ganginum og einni afsteypunni, þ.e. þeirri sem tekin var niður að hluta (6. mynd). Kom þá í Ijós að bæði gangurinn og afsteypan innihalda töluvert magn smárra díla af plagíóklas og ágíti, ásamt stöku ólivíndílum. I hrauninu eru hins vegar mun stærri plagíóklasdílar auk ágítdíla, en engir ólivíndílar. Efnagreiningar á þessum sömu myndunum (sjá I. töflu og 8. mynd) leiða í ljós að berggangurinn og afsteypan hafa mjög líka efnasamsetningu. Hraunið er hins vegar með nokkuð aðra samsetn- ingu, sérstaklega hvað varðar styrk MgO og TiO,. Benda þessar athuganir til að gangurinn og afsteypan séu mynduð af 38

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.