Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 62

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 62
3. mynd. Horft í norðvestur yfir Flóðið til syðri hluta Vatnsdalshóla. - Southern part of Vatnsdalshólar. Ljósm./photo: Agúst Guðmundsson. af mörgum vatnsfarvegum. Allt um kring standa strókmyndaðir hólar sem minnka út til jaðranna. Jaðarhólarnir líkjast um margt dauðíslandslagi af þeirri gerð er myndast getur framan við hopandi jökul- sporða þar sem jökull rýrnar undan urðarþekju (Sudgen og John 1976). Snemma í ágúst 1996 átti ég leið um Norðurland og stoppaði um stund í Vatnsdalshólum. Fór ég víða um miðbik hólanna, vestan við veginn sem liggur inn í Vatnsdalinn, og var aðallega að kanna samsetningu bergmola í hólunum. Eg hélt mig nálægt gamla þjóðveginum frá Vatns- dalshólum að Hólakoti og fór síðan stóran sveig til norðurs og austurs. Sunnan við gamla veginn vestan Vatnsdalshólabæjar fléttast saman líparítbreyskja og basískt berg úr mjög ummynduðum hraunlögum. I basísku hraunlögunum mátti sumstaðar sjá lárétta lagskiptingu er benti til þess að bergið hefði ekki flust til. Líparítið er þar aftur á móti svo óreglulegt og tætingslegt að ekkert varð ráðið um uppruna þess. Suður frá gamla veginum er í fyrstu um 200 m breitt belti þar sem líparítbreyskja er áberandi, en sunnar verður sífellt meira af basískum bergbrotum. I melum sunnan Vatnsdalshóla, nærri Miðhúsum og Breiðabólsstað, ber nokkuð á líparítdreif í jökulruðningi og tæplega 2 km vestan við bæinn á Hnjúki er holt eða lágur ás úr eintómu frostveðruðu líparíti. Þar er komið um 3 km suður fyrir hina eiginlegu Vatnsdalshóla. Tvær aðrar litlar líparít- skellur finnast á ásunum sunnan hólanna. Á 1-2 km belti sunnan Vatnsdalshóla sér lítið sem ekkert í berggrunn þar sem ræktuð hafa verið víðáttumikil tún. Loks má geta þess að líparítskella gægist fram úr urðarkápu Vatnsdalsfjalls, liðlega 50 m y.s. í gili ofan við bæinn Hjallaland. Lengst dvaldist mér í efnismestu hóla- þyrpingunni vestan og norðvestan við bæinn í Vatnsdalshólum. Þóttu mér svo sterkar líkur á að sumt af berginu væri í óhreyfðum berggrunni að ég fór viku síðar með segulmæli um hluta svæðisins og segulmældi bæði líparít og bergganga þar sem ég taldi mestar líkur á að um óraskað 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.