Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 3

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 3
Árni Einarsson: Botn Mývatns: Fortíð, nútíð, framtíð INNGANGUR Mývatn er á vesturjaðri eldvirka beltisins, sem liggur um Norðurland þvert frá norðri til suðurs. Vatnið er í kvos milli tveggja sprungusveima. Vestan Mývatns er sprungusveimur sem kenndur er við Þeistareyki. Engin eldvirkni er kunn á honum í nágrenni Mývatns. Hinn sprungusveimurinn er austan Mývatns, og er hann tengdur Kröflueldstöðinni. Sá sprungusveimur hefur verið mjög virkur eftir ísaldar- lok, og eru á honum frægar eldstöðvar á borð við Hverfjall og Lúdent og ýmsar myndanir tengdar eldvirkni, t.d. Dimmuborgir og gervigígarnir við Mývatn (Sigurður Þórarinsson 1979). Mývatn sjálft er skilgetið afkvæmi jarðelda á sprungusveimnum, og ber allt landslag við vatnið þess vitni. Efnasamsetning lindavatnsins, sem rennur í Mývatn, er nátengd jarðfræði svæðisins. í berggrunninum er mikið af auðleystum næringarefnum, sem jarðvatnið tekur í sig og ber með sér til Mývatns (Jón Ólafsson 1979b) þar sem þau nýtast til vaxtar þörungum og öðrum vatnagróðri. Tiltölulega sólríkt er við Mývatn (Markús Á. Einarsson 1979), og nýtast næringarefnin því vel til framleiðslu lífrænna efnasambanda. Lífríki Mývatns mótast mjög af því hve grunnt vatnið er. Vegna hag- stæðra birtuskilyrða við botn er þar mikill gróður, og ræður hann miklu um annað líf á botninum. Fjölmargar tegundir vatnafugla geta notfært sér dýralíf og gróður botnsins vegna þess hve grunnt vatnið er. I grein þessari er fjallað um sögu vatnsbotnsins og þátt hans í hinu sér- stæða lífríki Mývatns. Pá er rætt um botninn sem kísilgúrnámu og hvaða áhrif námagröftur þar kann að hafa á lífríkið. MÝVATN Mývatn (1. mynd) er 37 km2 að flat- armáli og því eitt af stærstu stöðu- vötnum landsins. Það skiptist í tvo meginhluta: Ytriflóa, sem er tæpur fjórðungur alls Mývatns, og Syðriflóa. Mestallur Syðriflói er 2-3,3 metrar á dýpt, en Ytriflói er mun grynnri, eða um 1 metri. Innstreymi í vatnið er um lindir við austurströnd þess og um Grænalæk. Grænilækur kemur úr Grænavatni um 2 km sunnan Mývatns. Lindir við suðausturströnd vatnsins eru kaldar (um 5°C), en í Ytriflóa eru volgar lindir (um 20°C). Vatnið í Ytri- flóa rennur út um Teigasund yfir í Syðriflóa og þaðan í Laxá. Gegnum- streymi vatns í Mývatni er ört, en talið er, að vatnið endurnýist á u.þ.b. 27 dögum (Jón Ólafsson 1979a). 153 Náttúrufræöingurinn 55(4), bls. 153-173, 1985
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.