Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 20
svæðið austan undir Neslanda- tanga, umhverfi Hrúteyjarness, ná- grenni Driteyjar og Beinavík við Hamarshóla. 5. Aðalútbreiðslusvœði hrafnsandar- innar. íslenski hrafnsandarstofninn er mjög lítill, og er hann að mestu bundinn við þingeysk vötn, einkum þó Mývatn (sbr. það sem áður greinir). Aðalstöðvar hrafnsandar- innar á Mývatni eru umhverfis Belgjarhöfða. 6. Fellistöðvar álfta. Tveir stórir álfta- hópar halda til á Mývatni yfir sum- arið og fella þar flugfjaðrir. Er ann- ar á Ytriflóa (12. mynd) en hinn á innri hluta Neslandavíkur. 7. Fellistöðvar gargandar. Nær allur íslenski stofninn kemur saman á Mývatni til að fella flugfjaðrir. Oft- ast halda gargendurnar til við Hrút- eyjarnes á meðan þær eru í sárum. í B-flokki eru svæði, sem virðast standa undir verulegum hluta fugla- stofna, en útbreiðsla fuglanna er nokk- uð breytileg milli ára og endurspeglar e.t.v. breytingar á útbreiðslu botn- dýra. í B-flokki eru eftirtalin svæði: 1. Vesturhluti Syðriflóa. Austurmórk þessa svæðis eru næsta óljós og kunna að liggja mun austar en kort- ið (13. mynd) sýnir. 2. Sundið milli Fellshóls og Mikleyjar. 3. Umhverfi Strandarhólma og hlutil Strandarvogs. Eins og sjá má er afmörkun svæða í bæði A og B-flokki einkum byggð á útbreiðslu og þéttleika fugla. Enn er ekki fullljóst að hve miklu leyti fugl- arnir endurspegla átumagnið á mis- munandi botnsvæðum og hvaða áhrif vatnsdýpi hefur á dreifingu fuglanna. Miðhluti Syðriflóa, sem að mestu lendir utan A og B flokka, er nokkru dýpri en lykilsvæðin, og kann það eitt að valda því, að minna er af fugli þar en á öðrum svæðum. Þá er þess að geta, að dýpkun á hluta Syðriflóa með dælingu gæti haft afdrifaríkar afleið- ingar fyrir allt vistkerfi Mývatns. Er þá haft í huga, að kúluskíturinn er laus á botninum, og gæti svo farið, að hann safnaðist saman í dælingarskurðina. LOKAORÐ Verndun náttúru landsins byggist á tveimur meginþáttum. í fyrsta lagi þarf að skilgreina hvað beri að vernda, þ.e. hvað sé verndar vert. Mat á verndargildi landsvæða er formlega séð í höndum Náttúruverndarráðs. Gildismatið byggist að mestu á sam- anburði við önnur svæði hér á landi og erlendis, en einnig er tekið tillit til annarra þátta s.s. skilyrða til ferða- mennsku og hlunnindabúskapar. í öðru lagi verður að upplýsa hvaða að- gerða er þörf til að verndunarmark- miðin náist. Slíkar aðgerðir byggja á rannsóknum á eðli viðkomandi svæð- is. Þar sem um stórt og margbrotið vistkerfi eins og Mývatn og Laxá er að ræða, er vandinn óvenjulega mikill og þörf áratuga rannsókna. í þessari grein hefur þess verið freistað að út- skýra með dæmum hversu breytilegt lífríki Mývatns er, bæði í tíma og rúmi, og hve mikilvægur breytileikinn er fyrir þá þætti lífríkisins, sem við metum til náttúruverndargildis. Dæm- ið, sem fyrir liggur, er einfalt: Fyrir hendi er sterkur vilji til að viðhalda lífríki Mývatns og nágrennis í núver- andi horfi, - að minnsta kosti að við- halda auðgi þess, fjölbreytni og sér- kennum. Vilji þessi er studdur sér- stökum lögum um verndun svæðisins svo og skuldbindingu íslenska ríkisins í alþjóðasáttmála (Ramsar sáttmálinn, sbr. þingsályktun frá Alþingi 4. maí 1977). Vegna óvissu um hve stórt frið- landið þyrfti að vera til að ná þessum markmiðum létu menn sig ekki muna 170

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.