Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 56

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 56
nái ekki að verða jafn stórar og full- þroska kuðungableikjur þar sem magafylli beggja gerðanna er svipuð. Athuganir Lindströms (1955) og Frosts (1977) á atferli bleikju við svif- dýraát benda til að þær gleypi nokkur krabbadýr í senn, en síi þau ekki úr vatninu. Líklega gildir sama um murt- una í Þingvallavatni. Síun svifdýra er að öllu jöfnu mun afkastameiri fæðuöflunaraðferð en einstaka munnglefs, a. m. k. ef þéttleiki fæðu- agnanna er mikill. Sé glefsiaðferðin notuð má gera ráð fyrir að fjöldi fæðu- eininga, sem innbyrtar eru á tímaein- ingu, vaxi jafnt með vaxandi þéttleika fæðueininga til að byrja með, en síðan dragi úr fæðunámshraðanum uns hann nær hámarki, sem breytist ekki þótt þéttleiki fæðueininga sé aukin. Það sem takmarkar afrakstur slíkrar fæðu- öflunaraðferðar er sá tími og orka sem fer í að hremma og kyngja hverjum munnbita. Vegna þess hversu fæðu- agnirnar (svifkrabbarnir) eru smáar er möguleiki á að fæðuöflunartækni murtunnar fullnægi einfaldlega ekki vaxandi orkuþörf hennar með hækk- andi aldri og þá dragi úr vexti hennar. Hver fæðueining kuðungableikj- anna er margfalt stærri en murtanna og getur það skýrt af hverju þær verða stærri, þrátt fyrir að orkugildi og melt- anleiki vatnabobba sé minni en svif- krabba. Þrátt fyrir háa tíðni lítillar magafylli hjá sílableikju nær hún verulegum vaxtarhraða. Hér kemur ýmislegt til. Hornsíii eru stórar fæðueiningar og orkugildi þeirra hátt. Þá má benda á að fiskar sem lifa á öðrum fiskum virð- ast nýta fæðu sína mjög vel (Nikolsky 1963). Eins og komið hefur fram helst í hendur að er fiskarnir verða kyn- þroska þá hægir á vextinum. Ljóst er að allmikil orka fer í myndun hrogna og svila svo og í kynatferli, orka sem ekki nýtist til vaxtar annarra vefja. Við kynþroska verða og verulegar breytingar á hormónastarfsemi sem hafa áhrif á vöxtinn auk þess sem veru- lega dregur úr fæðunámi (sbr. 6. mynd). Það getur því allt eins verið að orsaka stærðarmunar bleikjugerðanna sé fyrst og fremst að leita í kynþroska- ferlinu, en ekki í fæðunni. Útlit bleikjugerðanna, einkum munnlögun og litarfar (sbr. 1. mynd), virðist endurspegla lifnaðarhætti þeirra á all skýran hátt. Dverg- og kuðungableikja bera mörg einkenni hægfara botnfiska (sbr. Keast og Webb 1966) og munnlögun þeirra er sérlega vel aðlöguð að botndýraáti, t. d. að skafa upp eða soga vatna- bobba af botngrjótinu. Dökkt litarfar þeirra, þó einkum búningur dverg- bleikja, samlagast botninum vel. Vaxt- arlag og litaraft murtu og sílableikju er meira í ætt við hraðskreiða uppsjávar- fiska eða ránfiska (sbr. Keast og Webb 1966). Skoltar eru jafnlangir og gin- vídd tiltölulega mikil, og eiga þessi einkenni ágætlega við lifnaðarhætti þeirra. SAMANBURÐUR VIÐ AÐRAR RANNSÓKNIR Innlendar athuganir. Niðurstöðum þessarar rannsóknar ber ágætlega sam- an við niðurstöður fyrri athugana á fæðu bleikjanna í Þingvallavatni (Bjarni Sæmundsson 1904, Árni Frið- riksson 1939, Úlfar Antonsson 1980, Sigurður Snorrason 1982). Hafa verður í huga að sýnatökur í athugun- um framangreindra manna voru mjög takmarkaðar í tíma og rúmi. í fyrri at- hugunum kemur fram að sílableikjur nærast talsvert á murtu. Athyglisvert er að Bjarni nefnir hornsíli ekki á 206
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.