Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 68
RITFREGN
FJÖLRIT NÁTTÚRUFRÆÐI-
STOFNUNAR
Ný ritröð, Fjölrit Náttúrufræðistofn-
unar, hóf göngu sína í júní síð-
astliðnum. Er ætlunin að ritröð þessi
flytji greinar um hvers konar náttúru-
fræðilegt efni. í hverju hefti er aðeins
ein grein.
Tvö fyrstu ritin eru þegar komin út.
Hið fyrsta er eftir Bergþór Jóhannsson
mosafræðing. Nefnir hann það Tillög-
ur um nöfn á íslenskar mosaœttkvíslir.
Bergþór er sá maður sem mest hefur
fengist við mosarannsóknir á Islandi
og því hlýtur þetta kver, með nöfnum
sem langflest eru ný, að vekja forvitni
margra.
Annað heftið í ritröðinni nefnist
Dagbók um Heklugosið 1947-1948.
Hún er skrifuð af Jóhanni G. Guðna-
syni í Vatnahjáleigu, Austur-Land-
eyjum, en Haukur Jóhannesson, jarð-
fræðingur á Náttúrufræðistofnun, ann-
aðist útgáfuna og ritaði inngang. Eins
og segir í inngangi hlýtur þessi lýsing
gossins að vera mikill fengur fyrir
jarðfræðinga. Á það ekki síst við um
seinustu mánuði gossins, því að um þá
munu finnast fáar heimildir.
Ritin eru seld á Náttúrufræðistofn-
un og kosta kr. 100. Þar er einnig hægt
að gerast áskrifandi að ritröðinni eða
fá einstök hefti send í pósti.
Pálína Héðinsdóttir
218