Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 73

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 73
6. mynd. Kort, sem sýnir af- stöðu Hjaltlandseyja til nær- liggjandi landa. HEIMILDIR: Childe, V.G. 1964. The earliest inhabi- tants. - The Northern Isles, (F.T. Wainwright), London. Jóhansen, J. 1975. Pollen diagrams from Shetland and Faroe Islands. - New Phytologist, Oxford. Jóhansen, J. 1978. The introduction of Plantago lanceolata to Shetlands Is- lands. - Danmarks geologiske Under- sögelse. Árbog 1977. Köbenhavn. Spence, D.H.N. 1979. Shetlands living landscape. — Sandwick. Whittington, G. 1979. A sub-peat dyke on Shurton Hill, Mainland, Shetland. - Proceedings of the Society of Antiquar- ies of Scotland. EFTIRMÁLI ÞÝÐANDA Þegar ég las þessa grein í tímaritinu Mondul, fyrsta heftis þess frá árinu 1983, sem er gefið út af Föroyja Forn- minnssavni, þótti mér hún ærið fróðleg. Bað ég höfund hennar leyfis til að þýða hana, sem ég fékk fúslega. Við íslendingar þekkjum alltof lítið til þeirra eyja, sem rísa eins og klettar úr hafinu sunnan lands okkar. Margir þekkja nokkuð til Færeyinga og lands- hátta þar, en þeir eru ekki ýkja marg- ir, sem stigið hafa í land á Hjaltlandi, Orkneyjum eða Suðureyjum. Ég er alveg ókunnugur á þessum slóðum en hef lesið ýmislegt um þessar eyjar í sambandi við trjárækt og skógrækt og haft mjög gaman af. Hjaltlandseyjar eru af svipaðri stærð og Færeyjar að flatarmáli, um 1400 ferkílómetrar. Þær eru láglendari og hæstu fell eða bungur um 300 metr- ar. Eyjarnar lutu Norðmönnum og síðar Dönum uns Kristján I. Danakon- ungur setti þær sem veð fyrir heiman- mundi dóttur sinnar, þegar hún giftist Jakobi 3. Skotakonungi um miðja 15. öld. Heimanmundurinn var aldrei goldinn og þar með komust þær undir Skota og síðar Englendinga. Þar var talað norrænt mál um langan aldur og 223

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.