Náttúrufræðingurinn - 1934, Blaðsíða 5
NÁTTÚRUFR.
51
Nýjar íslenzkar plöntur.
Síðan 2. útgáfa af Flóru íslands kom út 1924, hefir á hverju
ári, að kalla má, nokkuð verið unnið að gróðurathugunum og
grasasöfnun hér á landi. Við þessar rannsóknir hafa nokkrir nýir
borgarar bætzt við í gróðurríki landsins. Hefir þeirra flestra ver-
ið getið jafnóðum í Skýrslum Náttúrufræðisfélagsins, en fæstum
þeirra verið lýst þar. Hér kemur í fyrsta sinn lýsing þeirra allra í
heild. Um plöntulýsingar þessar er annars fátt að taka fram. Þær
eru samdar eftir skoðun íslenzkra eintaka af tegundum þeim, sem
um er að ræða, en hliðsjón höfð af lýsingum sömu tegunda í „Flór-
um“ nágrannalanda vorra- En þar sem eg af flestum tegundunum
hafði aðeins sárafá eintök til skoðunar, má gera ráð fyrir, að
lýsingarnar séu ekki alls staðar svo nákvæmar, sem æskilegast
hefði verið. Þó hygg eg, að þær dugi í flestum tilfellum þar, sem
lýsing ein nægir til ákvörðunar plöntunni. En oft verða plöntur
eigi ákvarðaðar með vissu, nema menn hafi eintök til samanburð-
ar af sömu tegund.
Til hægðarauka hefi eg sett greiningartöflur við hverja teg-
und, eru þær þannig úr garði gerðar, að alls staðar verða þær sett-
ar í samband við samsvarandi greiningartöflur í Flóru íslands,
enda verða þær eigi notaðar öðruvísi en sem hluti af þeim. Það
af greiningartöflunum, sem beinlínis er tekið upp úr Flóru, er
merkt með sömu stafliðum og merkjum og þar, og um leið vísað
til blaðsíðutals, svo að auðvelt ætti að vera að sjá, hvar hver
tafla á heima.
Vona egað þessar lýsingar stuðli að því, að áhugasamir Flóru-
unnendur fari að veita þessum nýju gróðurborgurum eftirtekt, því
að áreiðanlega vaxa þeir víðar á landinu en kunnugt er enn þá.
í svigum aftan við íslenzku plöntuheitin hefi eg sett skamm-
stöfuð höfundanöfn þeirra ásamt tilvísun um, hvar plöntunnar sé
fyrst getið á íslenzku. Er það gert þeim til hægðarauka, sem vita
vildu nánar um fundarstaði, en hér er skýrt frá.
SKAMMSTAFANIR: Au.: Austurland. (Landshlutunum eru hér sett
sömu takmörk og í Flóru). Fl. ísl.: Flóra íslands, 2. útg. 1924. H. Jónass.:
Helgi Jónasson bóndi, Gvendarstöðum. I. Ó.: Ingimar Óskarsson grasafræð-
ingur, Akureyri. N.: Norðurland. NV.: Norðvesturland. S.: Suðurland. Sk.:
Skýrsla Nóttúrufræðisfélagsins. St. Std.: Steindór Steindórsson, SV.: Suð-
vesturland. S.-Þing.: Suður-Þingeyjarsýsla.
4*