Náttúrufræðingurinn - 1934, Blaðsíða 7
NÁTTÚRUFR.
53
1. mynd. Vatnalaukur. a. þversneið,
b. langsneið af blaði, c. gróhirslur
með smágróum, d. e. gróhirslur með
stórgróum, f. stórgró. (Úr Blytt).
2. mynd. Safastör. a. blómskipan-
ir, b. kvenblóm, c. hulstur, d. þver-
sneið af hulstri, k. stöngulhluti, m.
jaröstengla, n. karlblóm. (ÚrBlytt).
Greining:
B. Blöðin öll eins, kaflæg, legglaus. Fl. Isl., bls. 20.
1. Blöðin greipfætt, hjartalaga eða egglaga. Potamogeton per-
foliatus.
2. Blöðin löng, hálfgreipfætt. P. praelongus.
Lýsing:
Stöngullinn með hnébeygðum liðum, marggreindur ofan til.
Engin flotblöð. Öll blöðin stilklaus, hálfgreipfætt, aflöng eða
lensulaga, snubbótt með bátlaga oddi, fagurgræn á litinn, hálf-
gegnsæ og roðna ekki við þurrkinn, heilrend, eða með lítið eitt
hrokknum röndum, að minnsta kosti er þau þorna. Strengir í
blöðunum margir og greinilegir, miðstrengurinn breiðastur, ljós-
leitur. Lengd blaða 8—20 cm. Breidd 10—20 mm. Axstilkurinn
jafngildur, verður mjög langur að lokinni blómgun. Axið gisblóma.
Aldinið allstórt með hvössum kili á baki.
Stórvaxin planta, er verður allt að 3 m. á lengd. Vex í all-
djúpum tjörnum og vötnum.
Neðra-Selvatn, Isafjarðarsýslu, NV., 1925; Hólavatn, Eyja-
firði, 1929, I. Ó. Á allmörgum stöðum í S.-Þing., H. Jónass. og
Vilhjáímur Grímsson.