Náttúrufræðingurinn - 1934, Blaðsíða 13
NÁTTÚRUFR.
59
Hraun í Fljótum N., í gróðurlítilli skriðu, ca. 400—500 m.
yfir sjó. Einar B. Pálsson.
11. Viola epipsila Ledeb. Birkifjóla (I. Ó., Sk. 1927—28,
bls. 44).
Greining:
A. Enginn blöðóttur ofanjarðarstöngull. Blómleggirnir með 2
örsmáum háblöðum, eru beinlínis greinar á jarðstönglin-
um. Fl. ísl., bls. 127.
1. Blöðin nýrlaga, hárlaus. Forblöðin neðan við miðjan
blómstilkinn. Viola palmtris.
2. Blöðin hjartalaga eða hjarta-nýrlaga, gishærð á neðra
borði. Forblöðin ofan við miðjan blómstilkinn. V. epipsila.
Lýsing:
Jarðstöngullinn láréttur. Blöðin stilklöng, íhvolf, breið-
hjartalaga eða hjarta-nýrlaga, séu
þau nýrlaga, dregst blaðið ætíð
fram í stuttan odd, sljósagtent, tenn-
urnar örsmáar, gishærð á neðra
borði. Blöðin standa aðeins tvö og
tvö saman. Blómin stilklöng, blóm-
leggirnir lítið eitt hærðir, og standa
forblöðin á þeim ofan við miðju.
Bikar oft hærður. Krónublöðin
dökkblárri en á mýrfjólu. Þessar
tvær tegundir eru mjög líkar. Beztu
greiningarmerkin eru: hæringin á
blöðunum og blaðtennurnar. Mýr-
fjólan er ætíð hárlaus og blaðtenn-
ur bogadregnar.
Vex í líkum jarðvegi og mýr-
fjólan. Iíefir miklu oftar fundist
blómlaus en blómguð hér á landi.
Fljótsdalshérað austan Lagarfljóts, Svínadalur í Reyðar-
firði Au. 1927. I. Ó. Allvíða í Eyjafjarðar- og S.-Þingeyjarsýslu
N. I. Ó„ H. Jónass., St. Std.
12. Empetrum hermafroditum (Lge.) Hagerup. Krmnma-
lyng (St. Std.).