Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 19
NÁTTÚRUFR.
65
II. Gosið.
1. Athuganir sunnanlands:
Það fyrsta sem mun hafa sést til gossins var á föstudags-
lcvöldið, 30. marz. Þá var Guðmundur Einarsson, listmálari,
staddur uppi á Skálfelli norður af Svanastöðum. Virtust
honum þá fimm blossar brenna yfir Vatnajökli. Á tólfta tím-
anum þetta kvöld, urðu tveir drengir, sem komu utan úr Ör-
firisey varir við eldinn og sögðu næturvörðum Reykjavíkur
írá.
Jón næturvörður Jónsson, frá Laug segir svo frá: „Við
næturverðir gengum nú upp að Leifsstyttu á Skólavörðu-
holti. Sáum við þá — í stefnu á Hamrahlíð — gjósa upp
blossa við og við með stuttu millibili. Svo virtist þetta liggja
niðri um hálftíma eða svo, en hjelt síðan áfram svo að segja
viðstöðulaust fram undir morgun.Um kl. 4 um nóttina magn-
aðist þetta mjög, kom þá eins og skýstrókur eða mökkur með
miklum hraða, langt upp á himininn, ýmist hækkandi eða
lækkandi. Stundum var mökkurinn einn samanhangandi
bjarmi og eldglæringar upp úr. Þetta hélst viðstöðulaust þar
til bjart var orðið. Svo þjettir voru blossarnir að eitt sinn töld-
um við 60 á 20 mínútum".1)
Vilhjálmur Árnason á togaranum Gyllir skýrir frá: ,,Um
11 á föstudagskvöldið (30.3.) er við vorum að leggja af stað
af Selvogsgrunni, sá eg ljósglampa í austri. Við vorum vestar-
lega á ,,bankanum“ og var bjarminn í stefnu af Heklu. tJr
þessu sást bjarminn altaf við og við alla nóttina og var mjög
greinilegt að þetta var eldgos. Bjarminn sást einnig eftir að
við komum fyrir Reykjanes, inn í Faxaflóa".1)
Laugardaginn 31. apríl, sást til gossins allan daginn frá
Reykjavík. Var þá heiður himinn og skyggni ágætt. Sást bólst-
ur um daginn yfir Hamrahlíð, ýmist óðfluga hækkandi eða
lækkandi með sama hraða. Þegar skyggja tók um kvöldið
sáust eldleiftur mjög greinilega og bjarmi hátt á loft upp.
Sama dag er Hannes póstur á Núpsstað á ferð vestur
yfir Skeiðarárjökul. Kl. 3,30 verður hann var gossins. (Sjá skýrslu
hans um hlaupið hér að framan.)
Kl. 8 þennan dag verður Oddur í Skaptafelli var við
smá leiftur og útvarpstruflanir.
1) Morgunblaðið 1. apríl.
5