Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 33
NÁTTÚRUFR.
79
sem hér fer á eftir. Hún finnst stöku sinnum (erlendis) úti á
víðavangi, en hefst þó einkum við í mannabústöðum.
1. teg. Litli kakalaki1). (Ph. germanica L.).
Mógulur að lit. Á fyrsta frambolslið eru tveir aflangir,
dökkbrúnir blettir með 1 mm. millibili. Bæði kynin hafa vel
þroskaða fram- og afturvængi. Þakvængirnir ná lengra aftur
en bolurinn. Lengd 11—13 mm.
Þetta er alheimstegund (kosmopolitisk), sem borizt hefir
með skipum um víða veröld. Ekki er unnt að segja, hvenær hún
hefir fyrst fluzt hingað til lands, en síðustu áratugina hefir hún
verið hér að staðaldri, bæði í skipum og í kaupstöðum, eink-
um þó í Reykjavík, en hér heldur hún sig eingöngu í manna-
híbýlum og vör.ugeymslum, en finnst aldrei úti á víðavangi.
2. ættkvísl. Periplaneta Burm.
Til þessarar ættkvíslar eru hér kunnar tvær tegundir. Þær
má aðgreina þannig:
A. Fyrsti frambolsliður einlitur. Vængir ná styttra aftur
en bolurinn. P. orientalis.
B. Fyrsti frambolsliður dökkur um miðjuna, en ljós úti við
rendurnar. Vængir ná lengra aftur en bolurinn.
P. americana.
1. teg. Austræni kakalaki. (P. orientalis L.).
Dökkbrúnn að lit. Þakvængir karldýrsins eru nokkru styttri
en afturbolur, og flugvængir miklu styttri. Kvendýrið hefir mjög
stutta þakvængi. Afturbolurinn á karldýrinu er ljósbrúnni en
á kvendýrinu. Lengd 20—26 mm.
Þessi alheimstegund er upprunnin frá Asíu, en hefir tvær
síðustu aldirnar verið í Evrópu að staðaldri og borizt nokkrum
sinnum til Reykjavíkur á síðari árum með vörum frá útlöndum.
2. teg. Stóri kakalaki. (P. americana L.).
Brúnn að lit. Vængir því ljósari sem aftar dregur. Fram-
og afturvængir á báðum kynjum ná jengra aftur en bolurinn.
Fyrsti frambolsliður dökkur um miðjuna, en ljós úti við rend-
urnar. Lengd 28—32 mm.
1) Dr. Bjarni Sæmundsson náttúrufræðingur hefir gefið kakalökunum
íslenzku nöfnin.