Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 40

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 40
NÁTTÚRUFR. 86 myndi, ef vatnið drægist saman við það að frjósa: Þá yrði ís eðlisþyngri en vatn og sykki til botns, jafnóðum og hann mynd- aðist. Engin frostvarnandi íshúð myndaðist á yfirborðinu, og hvert stöðuvatn og hin kaldari höf myndu botnfrjósa miskunnar- laust á einum hörðum vetri. Á sumrin myndi sólin bræða að- ;eins tiltölulega mjög þunnt lag ofan af. Minnsta fyrirferð — og um leið mesta eðlisþyngd — hefir vatnið 4° C. heitt. Hvort sem það hitnar eða kólnar út frá því hitastigi, þenst það út og léttist, og þeim mun meir, sem hita- breytingin er meiri. Tökum nú til athugunar djúpa tjörn eða stöðuvatn að haust- lagi. Segjum, að vatnið á ýmsu dýpi sé að meðaltali 10°. Á yfirborðinu er hitinn nokkru meiri en við botninn, eins og allir sundmenn munu kannast við. Yfirborðsvavtnið, sem sólin hefir hitað uppfyrir 10°, blandast ekki að ráði kaldara vatninu dýpra niðri í lygnu stöðuvatni, því að um leið og yfirborðsvatnið er heitara, er það einnig léttara og flýtur ofan á. Hitinn minnkar því, eftir því sem dýpra kemur. Þó er hann hvergi undir 4°, því að 4°-vatnið er þyngst og hlýtur að vera neðst. Nú líður á haustið. Lofthitinn minnkar og fer niður fyrir hita vatnsins, sem heldur betur í sumarhlýjuna. En vatnið geisl- ar samt líka frá sér hitabylgjum og snertingin við hið kalda loft kælir yfirborð þess. Það kólnar því líka, en seinna en loftið. Þótt kuldinn mæði mest á yfirborðið, getur vatnið þar ekki orðið kaldara en við botninn, því að um leið og það yrði kaldara (nær 4°), yrði það þyngra og hlyti að sökkva. Afleið- ingin verður því sú, að kólnandi stöðuvatn hefir líkan hita á öllu dýpi, þangað til hitastiginu 4° er náð. Enn þá verða alger tímamót í sögu kólnunarinnar. Yfir- borðið missir enn hita út í hið kalda vetrarloft, og nú getur það kólnað niður fyrir 4° á undan botnvatninu, því að — ©ins og fyrr er sagt — um leið léttist það og flýtur ofan á. Afleið- ingin er þá sú, að á þessu síðara stigi kólnunarinnar — þegar kemur niður fyrir 4° — verður vatnið kaldast efst og hlýnar eft- jr því sem neðar dregur. Hlýjast við botninn í dýpstu álunum, þó hvergi yfir 4°. Svo kólnar yfirborðið enn meir smám saman, bæði af út- geislun og hinni nánu snertingu við frostvindana, sem næða um það og ýfa vatnsflötinn. Af öldurótinu hrærist nokkuð upp í vatn-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.