Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 63
NÁTTÚRUFR.
109
mælingar í yfirborði sjávar, en allra síðast eru niðurlagsorð, sem
höfundurinn kallar „Framundan".
S. E. Thuesen: Lidt om islandske varme Kilder
og deres Plantevækst. (Bot. Tidskr. 42. Bd. 4,
Köbenh. 1933.)
Höfundurinn dvaldi hér í júlí- og ágústmánuði 1931, og rann-
sakaði þá gróðurinn við ýmsar laugar á Suður- og Suðvesturlandi.
Bendir hann réttilega á, að ýmsar plöntur þrífist eingöngu, eða
því nær eingöngu, við laugar, og þakkar það því, að jarðvegurinn
er þar þýður á vetrum, enda þótt hann telji aðrar skýringar einn-
ig geta komið til greina.
Svend Andersen: Et lille Bidrag til Islands ther-
mophile Flora. (Bot. Tidsskr. 42, 5.)
Ritgjörð herra Tuesens, sem að framan er getið, hefir feng-
ið höfundinn til þess að grafa upp úr gleymskunni athugasemdir
sínar frá árinu 1921, þegar hann var hér á ferðinni. Er hann á
sama máli og Thuesen að því leyti, að hann telur vernd þá, sem
jarðvegurinn í kringum laugar lætur plöntunum í té, fyrst og
fremst fólgna í hitanum á veturna, er hlífi fræjum hinna mörgu
einæru plantna, sem þarna eiga heima. Höfundurinn fer skakkt
með heimildir úr Flóru Stefáns, þar sem hann heldur því fram,
að þar standi að álftalaukur (Isoetis echinospera) vaxi einungis
við laugar. f fyrsta lagi er þetta ramskakkt, og í öðru lagi stendur
það ekki í flórunni.
Ársrit Skógræktarfélags fslands, 1933—1934.
Rit þetta er hið myndarlegasta, og fyllilega samboðið að frá-
gangi og efni því góða málefni, sem í því er rætt. Ritið byrjar á
grein, sem heitir „á víð og dreif“, eftir M. Júl. Magnúss, fjallar
hún aðallega um ritið og Skógræktarfélagið. Þá er grein „Um
stofnun skóglendis og trjágarða“, eftir Kofoed-Hansen, skógrækt-
arstjóra, er þar meðal annars fróðlegt yfirlit yfir helztu sáðreiti,
sem nú eru til á íslandi, fjölda þeirra, aldur og stærð. Síðan er
fróðleg og vel rituð grein eftir Hákon Bjarnason, skógfræðing,
„Framtíðartré íslenzkra skóga“. Telur hann þar ýmsar tegundir
trjáa, sem hann telur líkur til að geti þrifist hér, og rökstyður
skoðun sína með góðri töflu um loftslag hér á landi, og í öðrum
löndum, þar sem tré þessi vaxa. Loks er grein eftir Sigurð Sig-
urðsson um „Trjárækt kringum bæi og hús“. Ritið er prýtt all-
mörgum snotrum myndum. Árni Friðriksson.