Náttúrufræðingurinn - 1956, Page 32
Steindór Steindórsson:
Ilótunýj iin^ar 1955
Síðan ég birti síðustu skrá mína um flórunýjungar 1951, hef ég
eins og að undanförnu, ferðast til gróðurrannsókna á hverju sumri.
Árið 1952 fór ég allvíða urn ytri hluta Fljótsdalshéraðs, 1953 um
Rangárvallasýslu og dálítið um Mýrasýslu og 1954 um Snæfells-
nes, einkum eystri liluta þess.
Hér er skýrt frá þeim nýju tegundum, afbrigðum og slæðingum,
sem ég fann á þessum ferðum mínum. Birtar eru einnig leiðrétt-
ingar, eða öllu heldur gerð endurskoðun á nokkrum tegundum í
3. útgáfu Flóru íslands. Greininni fylgir listi yfir nýja fundarstaði,
og eru taldar þar 46 sjaldgæfar tegundir og 9 slæðingar.1)
Slæðingarnir eru taldir í stafrófsröð, en annars eru tegundir tald-
ar í sömu röð og með sömu nöfnum og í Flóru íslands, 3. útg.
1. NÝJAR TEGUNDIR OG LEIÐRÉTTINGAR.
1. Botrychium simplex E. Hitch. Dvergtungljurt. Ný teg-
und. — Þjórsárdalur 1952. Sbr. Náttúrufr. 22: 182.
2. Ruppia maritima L. var. longipes Hagstr. Nýtt afbrigði. —
Stakkhamar, Snæfellsnesi 1954. Afbrigði þetta greinir sig frá
aðaltegundinni í því, að aldinleggirnir eru lengri og sveigðir
og vafðir í einn eða tvo hringa. Líkist það í því efni R. spiralis,
en á lienni eru vafningarnir að jafnaði allmiklu fleiri, svo að
ég tel réttast, að svo stöddu, að telja þetta íremur afbrigði af
R. maritima. Afbrigði þetta er algengt í Ameríku, en er ekki
getið í þeim norrænu flórum, er ég hef í höndum.
3. Phleum praténse L. ssp. nodosum (L.) Trab. Vallarfox-
1) Listi þessi hefur verið afhentur Náttúrugripasafninu til varðveizlu.
Ritstj.