Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 44
] 84
N ÁTT Ú R U F RÆÐINGURINN
Jón Jónsson:
Bergið í Búrfellshrauni
Fyrir þá, sem vilja vita bergfræðilega og efnafræðilega samansetn-
ingu Búrfellshrauns, er hér birt stutt lýsing á gerð hraunsins og
taldar þær steintegundir, sem byggja það upp. Einnig fylgir hér
efnagreining á því og er hún framkvæmd á Rannsóknarstofnun Iðn-
aðarins.
Hraunið er ólívínbasalt. Grunnmassinn er fremur fínkornóttur
og samanstendur af plagióklas, pyroxen, ólívín og málmi, segul-
járni (magnetít) og ilmenít. Það er feltspat-ólívín dílótt. Feltspat
dílarnir eru oft 5—8 mm í þvermál og ósjaldan stærri. Kantar þeirra
og horn eru áberandi oft rúllaðir án þess þó að mjög beri á, að þeir
hefðu verið í upplausnarástandi, þegar hraunið storknaði. Enn meira
áberandi eru ólívínkristallar, sem oft eru 5 nnn í þvermál og þaðan af
meira. Fyrir kernur að þeir eru algerlega ummyndaðir og eftir aðeins
svört málmklessa, sem þó heldur hinu upprunalega formi ólivín-
kristallsins (pseudomorfos). Inni í ólívínkristöllunum eru oft smáir
kristallar úr krómspinel] (picotít). Þeir eru rauðbrúnir, ógagnsæir
og oft svartir við kantinn. Slíkir kristallar eru algengir í ólívín í
Borgarhólagrágrýtinu og í ýmsum hraunum á Reykjanesskaga.
Steintegundir i Búrfellshrauni.
Plagióklas ......
Pyroxen .........
Ólívín...........
Málmur (opaques)
Dílar:
Plagióklas
Ölívín . .
1,99
3,02
Taldir punktar
1656