Samvinnan - 01.10.1967, Side 3
Siglufirði, 25/9 1967.
Herra ritstjóri.
í síðasta hefti Samvinnunn-
ar helgið þér skólamálum all-
mikið rúm. Þetta verður að
teljast þakkarvert, einkum þó
ef vel tekst til um það, sem
ritað er. Jafnframt látið þér
þess getið, að framvegis eigi
Samvinnan að vera opinn vett-
vangur, að mér skilst helzt öll-
um viðhorfum og skoðunum,
þeim er sæmilegt er að birta.
Ég vil því vænta þess, að þér
ljáið rúm nokkrum athuga-
semdum við umræddar grein-
ar, og skal ég þó reyna að vera
stuttorður, svo sem mér er
unnt.
Grein Jóns R. Hjálmarsson-
ar er þörf hugvekja svo langt
sem hún nær, en hefði mátt
vera ýtarlegri. Það hefði gjarn-
an mátt geta þess, hve íslenzk-
ir skólamenn og yfirleitt þorri
íslenzkra menntamanna hefur
staðið slælega á verði í þjóð-
ernismálum okkar og lakast
þeir, sem mest mátti af vænta,
menntaskólarnir og Háskóli
íslands. Sannarlega eru það
orð í tíma töluð, þegar -Jón
segir, að þjóðernismál okkar
megi ekki vera „nein feimnis-
mál, eins og nokkuð hefur bor-
ið á síðustu árin, eða flokks-
mál nokkurra stjórnmálasam-
taka.“ Ég held að enginn flokk-
ur hafi viljað gera þau að sinni
einkaeign, nema ef vera skyldi
þröngsýnustu sérhagsmuna-
menn Þjóðvarnarflokksins, og
gilti það þó alls ekki um hina
vitrari menn þess flokks. Það
hefur hins vegar borið nokkuð
mikið á því, að þau öfl, sem
lengst hafa gengið í því að
grafa undan íslenzkri menn-
ingu, hafa reynt að skilgreina
alla þjóðernisbaráttu okkar
sem kommúnisma, jafnvel ætt-
aðan frá Moskvu eða Peking.
Það hefur margur maðurinn
síðan guggnað fyrir hrópyrð-
um eins og „kommúnisti",
„nytsamur sakleysingi", svo að
maður nefni nú ekki nafngift
eins og „Hinn smurði Moskvu-
agent“. Það eru margir enn í
dag, sem ekki vilja vera staðn-
ir að því að „samneyta toll-
FLUGFAR STRAX
FAR GRE/TTS/ÐAR
Loftleiðir bjóða íslenzkum viðskiptavinum
sínum þriggja til tólf mánaða
greiÖslufrest á allt að helmingi þeirra
gjalda, sem greidd eru fyrir flugför
á áætlunarflugleiðum félagsins. Skrifstofur
Loftleiða í Reykjavík, ferðaskrifstofurnar
og umboðsmenn félagsins úti
á landi veita allar nánari upplýsingar
um þessi kostakjör.
Sívaxandi fjöldi farþega staöfeslir,
að þaö sé engu síöur vegna frábærrar
fyrirgreiöslu en hagstæöra fargjaida,
aö þeir íeröist meö Loftleiöum.
;
• •
ÞÆGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN OG HE/M
3