Samvinnan - 01.10.1968, Qupperneq 6
ur, er mér þætti nokkuð um
vert. Raunar hafði ég ekki
hugsað mér að ganga til spurn-
inga hjá einum eða neinum um
álit mitt á Ástum samlyndra
hjóna eftir Guðberg Bergsson,
og ber hvort tveggja til, að ég
tel skrif mín um bækur aðeins
persónulegt álit, látið í ljós í
fullri hreinskilni, og hverjum
heimilt að hafa það að ein-
hverju eða engu eftir því sem
honum sýnist, reiðilaust af
minni hendi, og einnig hitt, að
ég tel bók þá, sem hér er drep-
ið á, hvorki efni í miklar rök-
ræður né ástæðu til að hún
komi greindum sveitamönnum
í uppnám. En af því að Guð-
mundur Ingi er kunningi minn
og indælismaður, kann ég ekki
við annað en virða hann
svars, þó að það sé alveg víst,
að hann græði ekkert á svar-
inu.
Ég lét svo um mælt um Ástir
samlyndra hjóna, að þar mætti
sums staðar eygja jákvæða
vegagerð í þessum samtengdu
en sundurlausu atriðum, sem
sum væru haglegar smásögur,
og þá sýndi höfundur lesand-
anum veruleika samtíðarinn-
ar ósjaldan af alveg nýjum
sjónarhóli í skarpri birtu og
nakinni hörku.
í tilefni þessara orða spyr
Guðmundur: Hverjar eru þess-
ar smásögur?
Þessari spurningu get ég
ekki svarað til hlitar. Þessar
sögur eru óteljandi í bókinni
og verða oft ekki greindar
sundur. En ég ráðlegg Guð-
mundi Inga að líta með hrein-
skilni í eigin barm. Þá mun
hann skynja, að líf hans og
hugsun er sem annarra manna
eintómar smásögur, jafnvel
hver innan í annarri. Ég held,
að ekki þurfi að rökstyðja það,
að bók Guðbergs er einmitt
slík syrpa lífsmynda og smá-
sagna misjafnlega trúrra og
haglega sagðra. Óþarft er að
nefna dæmi, þegar bókin er
ekkert annað en slík dæmi.
Mat manns á því, hvað gott
er eða vont í þeim efnum, er
svo persónubundið, að það
verður ekki rökstutt nema að
mjög takmörkuðu leyti fyrir
öðrum, fremur en skyn manns
á músík, málverki eða konu.
Guðmundur spyr einnig: „Og
hvar í bókinni er veruleiki
samtíðarinnar sýndur af alveg
nýjum sjónarhóll?“ Það ger-
ist mjög víða, Guðmundur Ingi,
og sönnunin um það er ákaf-
lega nærtæk fyrir þig. Þú ert
meira að segja alltaf að tví-
stíga á henni. Hún er einfald-
lega sú, að þú átt bágt með
að átta þig á umhverfinu það-
• Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pea with Smoked Ham
• Chicken Noodle
• Cream of Chicken
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• 11 Vegetables
• 4 Seasons
• Spring Vegetabie
Ég hef aldrei lært að meta
mikils þær bækur, sem tönn-
last á því einu, sem ófagurt
er, en ekkert heilbrigt taka
með til samanburðar. Þetta er
vafalaust að kenna mínum
barnalegu sjónarhólum. Mér
finnst Birtingur Voltaires
hækka verulega við þessi um-
mæli garðbóndans í Tyrklandi:
„Starfið heldur frá okkur
þrem óvinum: leiða, leti og
nauð“. Og niðurlagsorðin eru
ævarandi hvatning til allra
velviljaðra manna: „Maður
verður að rækta garðinn sinn.“
Þetta grófa hæðnisrit hefur
lika staðið í 200 ár.
Ekki leyni ég því, að ég hafi
gaman af sumu í Ástum sam-
lyndra hjóna. Svo var t. d. um
skrítluna um notkun segul-
bandsins, þar sem sagt var frá
hjónunum, sem unnu úti
vaktavinnu og töluðust ekki við
í 8 ár, nema á segulbandi.
Þetta er fyndni, en hún sýnir
engan veruleika.
Svo er þetta listamannsvið-
tal: „Og slái sýningin í gegn,
fæ ég kannski listamanna-
styrk. Viltu hann? Hann þykir
vera viðurkenning. Viltu við-
urkenningu fífla og skræl-
ingja? Ég tek á móti viður-
kenningu frá þjóðinni. Frá
þjóðinni! fimm eða sex fífl-
um! Ja, mark er tekið á þeim“.
Þetta viðtal fannst mér
smellið, enda las ég það ekki
fyrr en höfundur þess hafði
hlotið Silfurhestinn sem við-
urkenningu frá gagnrýnendum
dagblaðanna; voru þeir ekki
fimm?
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
Guðmundur Ingi Kristjáns-
son skáld beinir til mín tveim-
ur eða þremur spurningum
vegna nokkurra orða, sem ég
lét falla umbeðinn hér í Sam-
vinnunni laust eftir síðustu
áramót, þegar mér var fyrir
sagt að nefna fimm nýjar bæk-
Bragðið ieynðr sér ekki
MAGGI súpurnar frá Sviss
eru hreint afbragð
MAGGI súpurnar frá Sviss eru búnar til eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meginlandinu,
og tilreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hinum
átján fáanlegu tegundum.
MAGGI
SUPUR
FRÁ
SVISS
6