Samvinnan - 01.10.1968, Blaðsíða 19

Samvinnan - 01.10.1968, Blaðsíða 19
sinni, að þau skyldu látin undir höfða- lagið í kistu hennar, og var það gert. Mörgum þótti vænt um að fá bréf frá Jónasi, jafnvel þótt það væru ekki nema örfáar línur, og geymdu þau vel. Piltar sem höfðu sótt um upptöku í Samvinnuskólann fengu línu frá honum um að koma og taka próf, menn sem hann hafði hitt fengu kunningjabréf, þar sem eitthvað var lagt til í leiðinni, sem gott væri að hrinda í framkvæmd í sveitinni eða þorpinu, og einum skrifaði hann eitthvað á þessa leið: Ég er góður að skrifa og þess vegna á ég að skrifa. Aðrir eru góðir að tala og þeir eiga ekki að skrifa. Þú ert góður að tala. Bréfið var sent til áhugamanns í stjórnmálum, sem lét greinum rigna yfir Jónas. Bréfið var ekki lengra en þetta. Sá sem fékk það hélt áfram að vera góður liðsmaður í talandanum. Annars ástundaði Jónas ætíð að herða fólk til athafna. Hann ástundaði það sem mætti kalla verð- mætasköpun hugarfarsins. Þetta kom sér vel á kreppuárunum, þegar ekki var úr miklu að spila. Mætti segja að það sem hér er kallað verðmætasköpun hugar- farsins hafi ráðið úrslitum á erfiðleika- tímanum 1930—‘1939 og raunar allar götur frá árinu 1918. Þessi verðmætasköpun hugarfarsins bjó til brauð úr steinum. Af þessu hug- arfari risu stórbyggingar, eins og Há- skólinn og Þjóðleikhúsið, og af því spruttu ýmis samtök fólksins. Þessi fram- farahugur réð því að vegirnir voru lagðir og skip voru keypt. Þetta varð allt að koma, og það kom, þótt menn viti ekki enn í dag hvernig þeir fóru að því. Jónas byrjaði sína verðmætasköpun með því að skrifa íslandssögu handa börnum, sem var svo þrungin af lífi og tilfinningu að 17. júní 1944 varð hið langþráða mark ungrar kynslóðar. Hann hóf námavinnslu heita vatnsins og boð- aði virkjun fallvatnanna. Hann talaði kjark í menn í blaðagreinum, með bréf- um og í viðtölum. Enginn var meiri meistari í verðmætasköpun hugarfars- ins en Jónas Jónsson frá Hriflu. VIII. „Pólitísk jarðarför Jónasar Jónssonar hefur farið fram í kyrrþey“, sagði kunn- ur sagnfræðingur og bolsi, eins og Jónas kallaði þá, í afmælisgrein um hann sjö- tugan. Þegar þetta var ritað hafði Jónas staðið utan við stjórnmálin í ein sex ár, ef miðað er við þingsetu hans. Jafn- framt segir í þessari skemmtilegu og merkilegu grein sagnfræðingsins, að ís- lenzkir sósíalistar geti einir minnzt af- mælisbarnsins með sögulegu jafnaðar- geði. Hætta er á því að þarna geti farið eins og um aðra nýsagnfræði, að ekki sé nógu langt um liðið til að meta rétt, og hið sögulega jafnaðargeð eigi eftir að verða fyrir nokkru áfalli. Þegar Jónas Jónsson frá Hriflu birtist á vettvangi þjóðmálanna lá í augum uppi að skipan stjórnmálaflokka hlyti að fara eftir stéttum að miklu leyti. Al- þýðuflokkurinn spratt af Alþýðusam- bandinu og Framsóknarflokkurinn var myndaður af samvinnumönnum og bændum. Þriðji flokkurinn átti sjálf- skipaðan sess. í sjómannaverkfallinu 1916 gáfu þeir Ólafur Friðriksson og Jónas út blað sem nefndist Dagsbrún og var Ólafur ritstjórinn. Áður eru rakin af- skipti Jónasar af félagsmálum verka- manna. Upp úr þessum jarðvegi spratt Alþýðusambandið og Alþýðuflokkurinn í náinni samvinnu við Jónas Jónsson. Sama árið og Jónas stóð með Ólafi í kjarabaráttu sjómanna komu bændur að norðan á fund með sunnlenzkum bændum við Þjórsá og stofnuðu lands- málaflokk, sem síðar fékk nafnið Fram- sóknarflokkurinn, og nokkrum mánuðum síðar var Sigurður í Yztafelli orðinn ráð- herra flokksins. Jónas vann sem hann mátti á báðum vígstöðvum meðal bænda og verkamanna. Eins og þá var háttað málum á ís- landi var óframkvæmanlegt að sameina í einum flokki verkalýð og sjómenn í bæjum og bændur. Á íslandi hafði verið bændaþjóðfélag í þúsund ár og þeim hefðum og viðhorfum, sem það leiddi af sér, varð ekki breytt í einni svipan. En með vaxandi félagshyggju, m. a. vegna tilvistar vaxandi samvinnuhreyfingar og ungmennafélaganna, var auðveldur leik- ur að sveigja umbótaöflin til samstarfs. Það var ekki hægt að gera meira árið 1916 en koma báðum þessum flokka- hreyfingum af stað. Eðlilega hefur oltið á ýmsu síðan, og margir komið til sög- unnar, sem skildu ekki meir en svo þörfina á samstöðu umbótaaflanna í þjóðfélaginu. Kommúnistum tókst að kljúfa Alþýðuflokkinn tvisvar, m. a. vegna skoðunar ráðamanna Alþýðu- flokksins á nauðsyn samstöðu vinstri flokkanna og hinna raunverulegu póli- tísku ættarbanda allt frá stofnun. Þann- ig unnu kommúnistar eins og þeir gátu Jónas Jónsson á efri árum. að því að setja á svið pólitíska jarðar- för samstöðunnar, áður en hún komst af eðlilegu þróunarstigi, og nutu til þess aðstoðar vina sinna, afturhaldsaflanna. Fyrir nokkru hófst gott samstarf Al- þýðusambandsins og Sambands íslenzkra samvinnufélaga um bréfaskóla. Reynsl- an af því samstarfi bendir í þá átt, að hægt sé að koma á enn víðtækara sam- starfi í náinni framtíð. Þarna er um línu Jónasar Jónssonar frá Hriflu að ræða. Hvarvetna er nú fjallað um aukna sam- stöðu umbótaaflanna í landinu. Ungir menn í vinstri flokkunum ræða um slíkt samstarf af sömu djörfung og réð gerðum Jónasar er hann kom ungur heim frá námi, og sá að það þurfti að strjúka mygluna af ríkjandi flokkaskipulagi. Það er því enn langt í land að hin pólitíska jarðarför leiðtogans fari fram. Miklu nær væri að segja að stjórnmálaþróun- in á næstu áratugum ætti eftir að bera svip af handbragði hans. Sá, sem gerðist faðir íslenzks flokkakerfis upp úr 1916, mun halda áfram að ráða enn um stund. Eins og fyrrum munu ungir menn verða til að endurnýja starfið þar sem frá var horfið. Nú eru ekki lengur þau ljón á veginum, sem í upphafi ákvörðuðu að flokkar skyldu myndaðir eftir stéttum. Hið sögulega jafnaðargeð er í hættu. Indriði G. Þorsteinsson. (Heimildir: Jónas Jónsson frá Hriflu eftir Jónas Kristjánsson og Aðalgeir Kristjánsson, Alþýðublaðið, Tíminn og Þjóðviljinn.) Jónas Jónsson á Akróvólis í hópi Austurlandafara haustið 1963. 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.