Samvinnan - 01.10.1968, Blaðsíða 11
5"“ SAM
VINNAN
EFNI HÖFUNDAR
3 Lesendabréf
12 Ritstjórarabb
13 MENN SEM SETTU SVIP Á ÖLDINA: Jónas Jónsson frá Hriflu Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur
20 ÁFENGISMÁL Á ISLANDI 20 Ofdrykkja á íslandi 23 Áfengismálin og heimilin 26 Áfengisvandamál á íslandi 28 Þankar um áfengisdrykkju 29 Mælt með hóflegri tækifærisdrykkju Dr. med. Tómas Helgason prófessor Alfreð Gíslason læknir Sigurjón Björnsson sálfræðingur Guðrún Helgadóttir varaborgarfulltrúi Amalla Líndal ritstjóri
32 SMÁSAGAN: Um daginn og veginn Jóhannes Straumland
35 Um Miroslav Holub Þorgeir Þorgeirsson
36 Undirrót hlutanna (Ijóð) Miroslav Holub
38 ERLEND VÍÐSJÁ: Skriðdrekar gegn framtíðinni Magnús Torfi Ólafsson
42 Valdníðingar Sigurður A. Magnússon
43 Rússneskur harmleikur Martin Nag
44 EINS OG MÉR SÝNIST Gísli J. Ástþórsson
46 Valdið og Ijóðið Siglaugur Brynleifsson
48 Um tvo heima sagnleiks og harmleiks Ernir Snorrason
51 Jarpur og ég (4 Ijóð) Atli Már
52 Kvikmyndasafnið í París og áhrif þess Þorgeir Þorgeirsson
54 SAMVINNA: Nýtt skref [ norrænu efnahagssamstarfi P. Nyboe Andersen
56 Leikhússpjall Sigurður A. Magnússon
60 Heimilisþáttur Bryndís Steinþórsdóttir
TIL ÁSKRIFENDA
Lesendabréf hafa verið með allra strjálasta móti uppá síðkastið, og
sætir það satt að segja nokkurri furðu, því fráleitt hefur efni tveggja slð-
ustu hefta allt fallið öllum lesendum jafnvel í geð. Skrifin um landbún-
aðarmálin í síðasta hefti hefðu til dæmis átt að örva til umræðna, og
sömuleiðis kannski greinarnar um forsetakosningarnar og kristna trú frá
sjónarmiði guðleysingja. Því verður ekki að óreyndu trúað, að lesendur
Samvinnunnar samsinni öllu sem í ritinu stendur, og mun fremur vera um
að kenna þennaleti eða hlédrægni en beinu skoðanaleysi. Er ástæða til
að örva menn til að senda ritstjórninni línu og jafnvel heilar greinar, ef
því er að skipta, og er þeim tilmælum ekki sízt beint til lesenda af yngri
kynslóð, sem hafa ekki enn látið til sín heyra i lesendabréfum svo neinu
nemi. Eldri kynslóðir hafa verið miklum mun pennaglaðari og framtaks-
samari að þessu leyti, og er ástæða til að eggja unga fólkið til dáða.
Um höfunda þessa heftis, sem ekki eru þjóðkunnir eða hafa ekki
verið kynntir í ritinu áður, má nefna að Amalía Líndal er bandarísk kona,
sem búsett hefur verið hérlendis í tvo áratugi og gefur út tímaritið
„65°“ á ensku um íslenzk málefni. Fyrir rúmum áratug kom út eftir
hana vestanhafs bók um ísland, sem hún nefndi „Ripples from lceland“.
Guðrún Helgadóttir var um árabil einkaritari rektors Menntaskólans f
Reykjavík, en stundar nú heimilisstörf, auk þess sem hún er varafulltrúi f
borgarstjórn. Martin Nag er kunnasti sérfræðingur Norðmanna um
slavneskar bókmenntir. Ernir Snorrason stundar heimspekinám í Frakk-
landi og hefur birt Ijóð og smásögur í skólablöðum og dagblöðum. P.
Nyboe Andersen, efnahags- og markaðsmálaráðherra Dana, er einn af
forustumönnum dönsku samvinnuhreyfingarinnar og Norræna samvlnnu-
sambandsins.
September—október 1968 — 62. árg. 5.
Útgefandi: Samband Islenzkra samvinnufélaga.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður A. Magnússon.
Blaðamaður: Eysteinn Sigurðsson.
Uppsetning: Teiknistofa Torfi Jónsson, Peter Behrens.
Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími 17080.
Verð: 300 krónur árgangurinn; 60 krónur í lausasölu.
Gerð myndamóta: Prentmyndagerðin Hverfisgötu 4.
Prentverk: Prentsmiðjan Edda hf.