Samvinnan - 01.10.1968, Blaðsíða 64
bylting skáldsögunnar í sér að
hafnað er „reglum“ hefðbund-
innar raunsæilegrar frásögu
— t. d. um frásagnarhátt
(fyrsta eða þriðja persóna),
tímaröð, venjulega „rökvísi" í
atburðarás o. s. frv.
4) Hvar kemur fram í Ást-
um samlyndra hjóna áhuga-
verð mórölsk og pólitísk gagn-
rýni samtíðarinnar?
—• Hvarvetna í bókinni er
fjallað um samtíðina og sam-
tíðarefni, ekki sízt sambúð ís-
lendinga og hersins í landinu,
sem er aðal-stef bókarinnar,
þjóðlegt, pólitískt, fjárhags-
legt og kynferðislegt siðgæði í
þessu sambýli, og er öll þessi
lýsing fullkomlega neikvæð, ég
nefni til dæmis sögur eins og
Rakstur og Ellefta atriði. Gagn-
rýni höfundar kemur að mínu
viti fram í hinni auvirðilegu
mynd samtíðar sinnar sem
hann dregur upp með þess-
um hætti — ekki í neinni
beinni umvöndun eða siðaboð-
un.
5) Hvernig á aö þekkja þessa
gagnrýni frá rausi og skvaldri
þegar glottið er alls staðar í
fylgd með setningunum?
— Ja, nú vandast máhð,
þarna gerðirðu mig bit Guð-
mundur. Fyrir minn smekk
getur gagnrýnin neikvæð lýs-
ing verið áhugaverð þó að
„glottið sé í fylgd með setn-
ingunum". Ummæli Guðmund-
ar Inga um Birting Voltaires
benda hinsvegar til að hann
óski eftir einhvers konar upp-
byggingu um leið, ákveðinni
siðaboðun og skoðun sem hann
geti dregið lærdóm af. Við
þeim veikleika kann ég engin
ráð að leggja — ég hef sem
sagt ekki áhuga á þvi að fá
Guðberg Bergsson né aðra höf-
unda til að predika yfir mér
siðferði heldur til að segja mér
sögur.
Ólafur Jónsson.
ATHUGASEMD
Til að girða fyrir misskilning
vil ég taka fram, að ekki er
fyrirhugað framhald af grein
minni „Stefnur í bókmennta-
könnun," sem birtist í síðasta
hefti Samvinnunnar. Tölustaf-
urinn I, sem stendur undlr fyr-
irsögn hennar, slæddist þar inn
fyrir mistök.
Eysteinn Sigurðsson.
ATLAS
PERMA-GUARD
FROSTLÖGUR
Höfum fengið nýja sendingu af ATLAS frostlegi.
Vegna hagkvæmra innkaupa, bjóðum við þennan
þekkta og viðurkennda frostlög á lægra verði en
á liðnum vetri.
Hin nýju verð eru sem hér segir:
í 1 /1 lítra dósum kr. 57.00 dósin
í 1/1 U.S. gall. dósum — 210.00 dósin
í tunnum................ — 43.25 lítrinn
OLÍUFÉLAGIÐ HF.
Klapparstíg 25/27 — Reykjavik
eru heimskunn fyrir gæði
Skermastærðir 11“, 19“, 23“, 25“, við allra hæfi
Söluumboð:
í kaupfélögum
um allt land.
Komið og skoðið.
Hringið eða skrifið
eftir upplýsingum.
,0A«fv.£ RAFTÆKJADEILD — HAFNARSTRÆTI 23
64