Samvinnan - 01.10.1968, Page 44

Samvinnan - 01.10.1968, Page 44
Þá hafa þeir Breshnev og kompaní rétt einu sinni sprangað fram í sviðsljósið. Þeir hafa borið sig borgin- mannlega og þeytt stríðslúðra og kúgað þjóðir. Það er óskemmtileg sjón að sjá pólitískt afskræmi rísa upp á afturlappirnar og halda sýn- ingu á sjálfu sér. Breshnev og félögum hans láðist að að- gæta að þeir stóðu berstrípað- ir á sviðinu. Þar sem lögreglan er sálna- hirðirinn og stjórnmálamenn- irnir spámenn, þar er illt að ræðishneigðir menn ennþá nokkum tíma til stefnu. En leiðtogar Sovétmanna gátu ekkert verið að bíða. Þessu er öllu lokið og allir spádómamir í hinni mögnuðu bók Orwells hafa þegar komið fram. Lítið dæmi: Gjallarhornin á götun- um í Prag sem æptu framan í hertekna fólkið að það ætti að vera kúgurum sínum þakklátt. Orwell byggir einræðisríki sitt á hinni hispurslausu, sí- endurteknu, yfirþyrmandi lýgi: svart er hvítt þegar það hent- ar stefnunni. Yfir dyrum „sannindaráðuneytisins“ í ein- ræðisríki Orwells er svohljóð- andi áletrun: Stríð er friður Frelsi er þrældómur Fáfræði er hreysti Breshnev og félagar hans beittu foringja Tékka líkam- legum þvingunum, og sam- kvæmt sumum heimildum var Alexander Dubcek jafnvel eiga lögheimili. En þó að glæp- urinn sem var framinn á Tékkum væri ófrýnilegur, þá var gjörnýting lýginnar jafn- vel viðbjóðslegri. George Orwell lýsir hinu algjöra þrælaríki í skáldsögu sinni „1984“. Eftir titlinum að dæma þá hafa ein- fluttur frá Prag í böndum. En fjölmiðlunartækin sem stjórn- að er frá Moskvu trúðu borgur- unum fyrir því að viðræðurnar milli sovésku leiðtoganna og fanga þeirra hefðu auðkennst af „hreinskilni og vináttu"; og tveimur þremur dögum eftir innrásína í Tékkóslóvakíu lýsti Pravda yfir: Tékkneska þjóðin elskar Sovétherinn Tékkneskur stúdent hét um svipað leyti á stúdenta um víða veröld: „Gleymið okkur ekki þegar Tékkóslóvakía er horfin úr fréttunum." Það er von að hann sé kvíðinn. Reynslan hefur sýnt að það fyrnist næsta fljótt yfir þessar klunnalegu nektarsýningar Sovétleiðtoganna þegar þeir veltast fram í sviðsljósið eins og fortíðarófreskjur og láta greipar sópa. En það er eng- inn vandi að muna Tékkó- slóvakíu. Maður þarf bara að minnast síðustu þrumulyg- innar sem var látin ganga á þrykk austur í Moskvu í nafni sannleikans: Tékkneska þjóðin elskar Sovétherinn Ef okkur vill gleymast hvað Sovétherinn er ástsæll í Tékkó- slóvakíu, þá getum við í stað- inn til dæmis rifjað upp fyrir okkur hvað Walther Ulbricht er vinsæll í Austur-Þýzkalandi. Við höfum ekki lakari heimild fyrir því en hann sjálfan. Hann er svo elskaður að hann hefur ekki þurft að senda skriðdreka á móti samborgur- um sínum síðan í ungversku byltingunni. Sumir halda að vísu að hann hafi kannski fjölgað í lögreglunni. Hann hnippti eitthvað ofurlítið i menn þegar þeir voru að manna sig upp í að mótmæla tékkneska harmleiknum, en það var ekkert að ráði. Menn voru bara varaðir við því að hafa vitlausa skoðun á mál- inu. Ulbricht er svo vinsæll að það dettur engum í hug að óhlýðnast honum. Menn hafa ekki einu sinni vitlausar skoð- anir á málum ef þá grunar að það geti komið honum í vont skap. Hann fær alltaf 99% at- kvæða eða þar um bil í öllum kosningum, og það hefur eng- inn skrifað stafkrók á móti honum í Austur-Þýzkalandi síðastliðin tuttugu ár, og eng- inn hefur heldur verið svo ósvífinn að bjóða sig fram á móti honum. Hann er svona vinsæll. Hann átti sjötíu og fimm ára afmæli í sumar, og af því hann er svo vinsæll þá tók verka- fólkið í verksmiðjunum sér mann í stakk og lét rigna yfir hann forláta afmælisgj.öfmn. Verkafólkið hélt fundi í verk- smiðjunum, og hann er svo vinsæll að það hvarflaði ekki að einum einasta manni að rísa á fætur og segja: Við skul- um ekki gefa Walther Ulbricht afmælisgjöf. Honum barst svo mikið af gjöfum að hann varð að taka sýningarhöll á leigu í Austur- Berlín til þess að sýna vinsæld- ir sínar. Hann er svona vinsæll. Hann fékk geysifínan útvarps- grammófón meðal annars og líkneskju af varðmanni með varðhund, og múrarafélags- skapur gaf honum griðarstórt málverk af ungri stúlku sem ég man því miður ekki lengur hvað heitir, en hún er að læra múrverk. Ég get skilið útvarpsgrammó- fóninn og ég hugsa ég skilji varðhundsmanninn sem er lík- lega til minningar um Berlín- armúrinn, en ég fæ ekki al- mennilega skilið þetta með málverkið. Ég meina: þó að til dæmis Bjami Benediktsson ætti stórt og merkilegt afmæli, þá held ég varla að neinum íslendingi mundi detta í hug að fara að færa manninum mynd af kvenmanni í fullum múraraskrúða. En Bjarni er náttúrlega ekki eins ótrúlega vinsæll og Ulbricht. Það er kannski öfug- uggaskapur, en ég get ekki sagt að ég eigi beinlínis sam- leið með mönnunum sem þykj- ast ætla að lækna allar mein- semdir þjóðfélagsins með stór- aukinni stúdentaframleiðslu. Mér finnst þessar bollalegg- ingar satt að segja komnar út í öfgar, af því við erum ekki einasta búnir að eignast menn sem sjá ekki sólina fyrir stúd- entunum: þeir sjá ekki þjóð- ina fyrir þeim að heldur. Það er mikið gert af því að bera okkur saman við útlend- inga í þessum efnum, en sam- anburður við stúdentafjölda annarra landa getur verið vill- andi og/eða beinlínis falskur. Ég hef til dæmis séð menn vera að vitna til Bandaríkj- anna, en það vill í fyrsta lagi gleymast að hér erum við í rauninni að tala um heila heimsálfu, og í öðru lagi og einmitt í framhaldi af þessu er ég viss um að æði margir bandarískix „stúdentar“ þættu dálítið undarleg vara hér heima, að ekki sé meira sagt. Bandaríkjamenn eiga að lík- indum ágætustu framhalds- skóla veraldar, en þeir eiga líka hraksmánarlegar próf- 44

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.