Samvinnan - 01.04.1971, Side 9
„Ég lýsi hér með yfir opnun
sýningarinnar."
Franz Joseph fór eitt sixm á
villisvínaveiðar með veiði-
meistara sínum. Veiðiferðin var
vel undirbúin, og á réttu
augnabliki birtist göltur í skot-
máli. Keisarinn hleypti strax af,
en honum auðnaðist einungis
að særa göltinn. Hann stóð
grafkyrr andartak, en æddi svo
hamstola í átt til keisarans.
Ástandið var alvarlegt og há-
tignin í bráðri lífshættu. Veiði-
stjórinn brá við skjótt, lyfti
byssu sinni og lagði göltinn að
velli með öruggu skoti.
Andartaksþögn ríkti eftir
þennan viðburð. Veiðimeistar-
inn andaði léttar og bjóst við
þakklætisvotti frá keisaranum.
En Franz Joseph, sem hafði
staðið við hliðina á honum með
byssuna tilbúna til að skjóta,
lét hana síga hægt til jarðar
aftur. Síðan sneri hann sér að
veiðistjóranum og sagði með
þungri áherzlu á hverju orði:
„Hvor er það sem er að
skemmta sér hér, ég eða þér?“
Þegar Franz Joseph heim-
sótti sýningu nokkra í Búda-
pest, var hann kynntur fyrir
fjölmennum hópi fyrirmanna,
sem stóðu að sýningunni. For-
stjórinn nefndi nafn hvers ein-
staks: „Herra X — Hans há-
tign, Herra Y — Hans hátign,
Herra Z — Hans hátign“ o. s.
frv. Þegar þessi skrípaleikur
hafði staðið yfir um stund,
hvíslaði keisarinn að forstjór-
anum:
„Nú held ég, að hinir herr-
amir séu búnir að fá pata af
því, hver ég er.“
Verzlunin P F A F F
Skólavöröustíg 1A — Sími 14725
b æ n d u r rússneskar
DRÁTTARVÉLAR
BÆNDUR
HAFA SÍÐASTLIÐIN 6 ÁR SANNAÐ
ÁGÆTI SITT HÉR Á LANDI.
FULLKOMNAR AÐ ÖLLUM ÚTBÚNAÐI.
T60 KRAFTMIKLAR — STERKBYGGÐAR.
Ódýrustu dráttarvélarnar á markaðinum miðað við stærð og tæknilegan útbúnað
NÝÁRGERÐ — BREYTT ÚTLIT
Verð á T-40, 40 hestafla loftkældri vél, með húsi og öryggisgrind, vökvastýri,
varahlutum og verkfærum:
AÐEINS KR. 182.000,00
Fyrirliggjandi til afgreiðslu nú þegar.
BJÖRN & HALLDÓR HF.
Síðumúla 19 Sími 36930 Reykjavík