Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Síða 4
78
fjelagsstjóri á Akureyri, sem stjórnarnefndarmaður og
Oddur Jónasson, verzlunarmaður á Akureyri, sem um-
sækjandi um erindisrekastarfið fyrir íslenzk samvinnu-
fjelög.
Pá var gengið til dagskrár og þessi mál tekin fyrir:
1. Formaður skýrði frá framkvæmdarstörfum Sambands-
ins síðast liðið ár, og nefndi fyrst útgáfu Tímarits-
ins, sem hefur haft nokkuð minni tekjuhalla í för
með sjer en að undanförnu. Pá gerði hann oggrein
fyrir kjötsölu Sambandsins síðastliðið ár, sem, að
samanlögðu, hafði orðið betri fyrir seljendur en annar-
staðar hjerlendis. Um sampantanir gat hann þess, að
þær hefðu eigi orðið nema með steinolíu. Erindisreka-
málið sýndi hann fram á að nú væri komið á þann rek-
spöl, að allar líkur væru fyrir því, að erindisreki sam-
bandsfjelaganna tæki til starfa um næstu mánaðamót. í
ullarverkunarmálinu benti hann á leiðbeiningar og leið-
arvísir Sigurgeirs Einarssonar, sem fram er komið fyrir
tilhlutun Sambandsins, að nokkru leyti. Þágerði hann
grein fyrir því, að nefnd sú, er á síðasta aðalfundi
var kosin til þess að athuga reikningaform kaupfje-
laganna og koma fram með. tillögur þar að lútandi,
hefði, af ýmsum ástæðum, eigi getað sinnt þessu
starfi, enn sem komið er. Loks minntist hann nokk-
uð á hluttöku og framlög Sambandsdeildanna í Eim-
skipafjelagi íslands, en í þessu máli, eins ogfleirum,
yrði síðar tækifæri tiláfundinum að ræða þau fram-
kvæmdarmál nánar, sem enn verða viðfangsefni Sam-
bandsins.
2. Lög Sambandsins lesin upp.
3. Framlagðar skýrslur um innfluttar vörur deildanna
1913 og var verðhæð þeirra:
1. Kaupfjelag Norður-þingeyinga . kr. 52,228.75
2. — Þingeyinga .... — 143,469.01
3. — Eyfirðinga . . . . — 173,989.00
4. Sláturfjelag Hrútfirðinga ... — 14,097.80