Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Síða 5
79
5. Sláturfjelag Austur-Húnvetninga — 72,189.40
Skýrslur vantar frá Kaupfjelagi Svalbarðseyrar,
Kaupfjelagi Skagfirðinga og Verzlunarfjelagi Stein-
grímsfjarðar.
4. Úrsögn úr Sambandinu kom fram frá Kaupfjelagi
Skagfirðinga.
5. í Sambandið gekk Sláturfjelag Skagfirðinga, með sam-
þykki fundarins.
ó. Út af umræðum um upptöku nýrra deilda, bar fund- .
arstjóri upp svohljóðandi tillögu:
»Fundurinn felur stjórn Sambandsins að leita eptir
því við þau sláturfjelög landsins, sem enn standa
fyrir utan Sambandið, hvort þau vilji ekki ganga í
það á þessu ári.«
7. Lesinn upp og lagður fram kostnaðarreikningur Sam-
bandsins 1913 — 1914. Reikningurinn því næst afhent-
ur endurskoðendum.
Pá var og upplesinn kjötreikningurinn fyrir 1913,
og í sambandi við hann gerði framkvæmdarstjóri
grein fyrir því, að ymsar eldri eptirstöðvar í kjötr
reikningi 1912 væru eigi svo fullgerðar að hægt
væri að gera endanlega ákvörðun um þær á þessum
fundi.
Sundurliðuð skýrsla um útsölu og verðskipting á
kjöti Sambandsdeiidanna síðast liðið ár var lögð fram
og í sambandi við það skýrði Hallgrímur Kristins-
son frá för sinni til útlanda í kjötsöluerindum á liðna
árinu. Að loknum umræðum kom fram og var sam-
þykkt svohljóðandi tillaga Sambandsstjórnarinnar:
»Afgangur kjötreiknings, 1913, renni í Sambands-
sjóð.«
8. Skipaðar nefndir:
a. Sameiginlegar pantanir:
Rorsteinn Porsteinsson.
Pjetur Jónsson.
Helgi Laxdal.
6