Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Page 6
80
Hallgrímur Kristinsson.
Jón Jónsson.
b. Starfssvið erindisrekans.
Sigurður Jónsson.
Ouðmundur Ouðmundsson.
Ingólfur Bjarnason.
Jón Hannesson.
9. Tímaritið:
Samþykkt að halda áfram útgáfu Tímaritsins í við-
líka stærð og áður og stjórnarnefnd falið að gera
sitt ýtrasta til að hinn væntanlegi erindisreki Sam-
bandsins sendi ritinu sem optast frjettir um starf-
semi sína, markaðsbreytingar og verzlunarhorfur.
Einnig taldi fundurinn álitlegra fyrir útbreiðslu ritsins
að það kæmi út í fleiri heptum á ári, að minnsta
kosti fjórum sinnum, eða svo opt sem stjórnarnefnd
telur samrýmanlegt við kostnaðinn og aðra aðstöðu.
10. Hagskýrslur deildanna og tillög. Samþykkt var:
»Fundurinn skorar á stjórn Sambandsins að ganga
þegar eptir þeim hagskýrslum frá deildum Sambands-
ins, sem enn eru ókomnar, og leggja alvarlega stund
á það, að niðurjöfnun á tiilögum deildanna fari
fram sem næst þeim tíma, er lög Sambandsins mæla
fyrir.«
11. Eimskipafjelag íslands:
Fundarmenn skýrðu að nokkru leyti frá hluttöku
deilda Sambandsins, sem telja má álitlega.
í umræðunum kom fram sama skoðun á málinu
og f. á. og æskir því fundurinn þess, að Sambands-
stjórnin vinni að því, að gera hagkvæma flutninga-
samninga við Eimskipafjelagið á sínum tíma og leit-
ist við að ná sem mestri hluttöku í stjórn og full-
trúaráði þess. Treystir fundurinn því að samvinnu-
fjelög landsins láti Eimskipafjelagið í lengstu lög
sitja fyrir viðskiptum og að stjórn Sambandsins geri