Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Síða 11
Samvinna bænda.
Eptir farandi erindi er þýtt úr bók, sem heitir »Cö-
operation among Farmers« (»Samvinna meðal bænda«) og
er höfundur hennar prófessor John Lee Coulter (Th. D.),
sem á heima í Bandaríkjunum. Bók þessi fjallar aðeins
um málefni bænda; um nauðsynlegar umbætur á búskap
þeirra og sveitalífinu yfir höfuð. Bókin er eiginlega skrif-
uð fyrir Bandaríkjabændur, en þó svo sje og það sje
mörgu ólíku saman að jafna þar og hjer, sjest þó að
ýmsu svipar aptur mjög svo saman í afarþýðingarmikl-
um atriðum. Par kemur fram mörg vöntun, sem við
þekkjum heima fyrir, svipaðar kröfur, stefnur og mann-
lífsstraumur. Og bótaráðin, sem nútímarithöfundarnir,
vestan hafs, þykjast helzt koma auga á, sem holl og
framkvæmanleg, verða einnig lík því sem hjá okkur eru
á dagskrá, sjerstaklega meðal samvinnufjelagsmanna:
aukin samvinna með alfrjálsu skipulagi; meiri sönn al-
þýðumenntun með heimatækjum í þeim greinum upp til
sveitanna; auðveldar samgöngur og aðstoð ríkisvaldsins
í öllu þessu, m. fl. o. fl.
Pað er áhuga mál þessa rithöfundar að koma sveita-
menningu í jafngott horf og á sjer stað meðal efnaðri
stjettanna í borgunum, en til þess telur hann bezta ráðið
að bændur bindist samtökum og komi góð'u skipulagi
á hjá sjer, og leggi kapp á það, að verða eins hyggnir
fjesýslumenn eins og starfsmenn gerast nú í borgunum.