Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Page 31
105
Blaðið »Skinfaxi« segir enn fremur svo um þetta mál:
»Fyrir sveitamenn, sem lifa að miklu leyti af óverð-
lagðri heimilisframleiðslu, þurfa sumir þessir liðir útskýr-
ingar. Fyrir 144 kr. á ári, eða 12 kr. á mánuði má fá
tvö smáherbergi í kjallara, uppi undir þaki, eða móti
norðri, þar sem aldrei sjest sól. Mjög opt er heilli fjöl-
skyldu hrúgað saman í eitt herbergi. Þar búa 4 — 7
manneskjur. Par er unnið og sofið, soðinn og geymdur
matur, hafst við dag og nótt. Mjer mun lengi minnis-
stæð ein slík íbúð í rakri kjallaraholu. Þar bjuggu hjón
með 4 börn. Loptið var illt og ekki hægt að opna
glugga: húseigandinn bannaði Joað, svo síður yrðu brotn-
ar rúður. Yfir allri fjölskyldunni var sultar- og rænuleys-
isbragur Samkvæmt skýrslunni verða 7 menn að lifa af
88 aurum á dag. Það er mun minna en einn maður
fær dagsfæði fyrir á algengum matsöluhúsum. Það eru
tæpir 13 aurar á mann, eða rúmlega 4 aura máltíðin.
Þó er miðað við 738 aura tekjur en ekki við 400—500,
eins- og margir verða að lifa við, þetta ár (1914). Allir
sjá, að hvernig sem að er farið, hlýtur þetta fólk að lifa
hörmungarlífi allan ársins hring, og þó einkum á vet-
urna. í fjögra aura máltíð er hvorki um mjólk, kjöt eða
smjör að tala, heldur ódýrasta fisksmælki, brauð, smjör-
líki, kaffi, sykur, kálmeti og hafragrauta. Jeg held, að ef
haframjöl væri ekki með, mundi hungurlíf fátæklinganna
vera hálfu verra en nú er; það er bezti hlutinn af fæðu
þeirra. Og í aðra liði þessa reiknings er ekki meira bor-
ið. Fjöldi manna svelltur, og líður í kyrþey, og vill ekki
þiggja ölmusu, þó boðin sje. En margir leita, vitaskuld,
til sveitarinnar, þegar um harðnar. Góðgerðafjelagið
»Samverjinn« gaf 200 — 400 manna fæði um 10 vikna
skeið í vetur, og þar að auki fæddi sveitin 210 skóla-
börn í 3 mánuði.
Pví miður eru ekki til ábyggilegar skýrslur um tekjur
og gjöld hjá sveitafjölskyldum, sem jarðarafnot hafa, en
það er engum vafa bundið, að þar er aðstaðan stórum