Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Síða 33
107
bandið var stofnað árið 1900, en hnignaði til muna
stuttu þar á eptir, enda þá eigi fylgt frumreglum kaup-
fjelaga, nema að sumu leyti. En síðustu 4 — 5 árin hefur
slíkt verið stórum lagað, og skipti þá fljótt til betra ár-
angurs.
Hinn flokkurinn á heima í miðhluta norðvesturríkjanna.
Aðal skrifstofa fjelagsins er í Minneapolis í Minnesota.
Fjelagið var stofnsett án þess að hafa nokkurn höfuðstól,
í fyrstu, og var aðaltilgangurinn sá, að fræða fjelagsmenn
og aðra um eðli og framkvæmdaratriði í hreinum sam-
vinnufjelagsskap.
Samvinnufjelög Bandaríkjanna eiga margri mótstöðu að
sæta: Smásalarnir hamast gegn þeim, af alefli; margir
standa efablandnir um árangurinn; aðrir gera gis að
tilraununum, og loks má telja að Iöggjafarvaldið hafi
verið fremur andstætt, sökum áhrifa auðkýfinganna.
F*egar síðarnefnda sambandsfjelagið var stofnað, »The
Right Relationship Company«*, árið 1906, var í Banda-
ríkjunum ekki eitt einasta tímarit er minntist á samvinnu-
fjelagsskap — nema hvað smágreinar, þess efnis komu
fram í sumum landbúnaðarblöðunum. — Nú er þessu
allt öðru vísi varið. Mörg mánaðarritsöfnin, landbúnað-
artíðindi og sum dagblöðin flytja nú leiðbeinandi ritgerðir
um hreifinguna.
Allt frá því að þrælahaldsmótblásturinn hvarf, að unn-
um sigri, hefur engin alþýóuhreifing í Bandaríkjunum
náó eins víða föstum tökum á hugum manna eins og
hin hagfræðislega samvinnuhreifing, bæði til framleiðslu
og verzlunar. Retta sjezt á því, meðal annars, að á fje-
lagsskrifstofuna, sem áður var nefnd, koma á hverjum
mánuði áskoranir svo hundruðum skiptir, um upplýsing-
ar snertandi stofnun og fyrirkomulag hreinna samvinnu-
fjelaga; þessu rignir að úr ýmsum stöðum, t. d. frá rit-
höfundum, bóksölum, tímaritum, kennurum, fyrirlesurum
* Nafn fjelagsins mætti þýða svo: »Fjelag rjetta frændaliðsins«.