Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Síða 34
108
sveitabændum o. s. frv. Stjórnardeild landbúnaðarmál-
anna í Washington hefur nýlega opnað sjerstaka skrif-
stofu, er hefur það hlutverk að kenna mönnum að fylkja
sjer eptir aðalskipulagi samvinnufjelaganna, svo land-
búnaðarafurðir komizt í meira álit og verð en áður var.
Margir af allra fremstu fjármálamönnum eru nú farnir
að sjá það: að frjáls samvinnufjelög eru eini meðalveg-
urinn, sem nú er til, milli harðstjórnar auðsafnsins og
stjórnarbyltingar fjelæginga. (Revolutionær Socialisme.)
Eins og fyr er vikið að, var það í fyrstu aðalstarf »frænda-
liðsfjelagsins« að frceða menn um þær hagfrœðislegu og
siðgœðislegu starfsreglur sem frumherjarnir í Rochdale
komu fram með, árið 1844. Fjelagið er sannfært um,
að þessi aðferð hafi mikið aukið almennan áhuga á
samvinnumálunum og greitt fyrir heppilegum framgangi
þeirra.
Samvinnufjelagsskapurinn í Bandaríkjunum breiðist
einkum út hjá sveitamönnum ög í smábæjum. í stærsta
sambandinu eru nú 150 deildir með 25 mil. kr. ársvið-
skiptaveltu, og stöðugt bætast við nýjar deildir.
F*að er engum efa bundið að samvinnuhreifingin á góða
framtíð fyrir höndum í Ameríku, þegar almenningur þar
er búinn að koma auga á þann mikla hagnað, sem það
veitir, að hafa fjelagsverzlun.
IV. Samvinnufjelagsskapur á Rússlandi.
Eptirfarandi yfirlit yfir samvinnufjelagsskap á Rússlandi
hefur þarlendur maður, Lenski-Bielton, sent skozku
kaupfjelagsblaði:
»Ef við söfnum saman tölu samvinnufjelaganna á Rúss-
landi (að frá teknu Finnlandi) og berum þessar tölur
saman við samskonar tölur í öðrum löndum, þá sjáum