Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1925, Blaðsíða 41
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 231
Helst lítur út fyrir að Svíar ætli að láta sér duga
þetta einstaklingsbann, því féð er eingöngu notað til þjóð-
þrifafyrirtækj a. Meðan á stríðinu stóð fór mikið af fénu
til að bæta úr atvinnuleysinu og húsbyggingalána.
Síðan þess þarf ekki við, og áður, hefir féð verið not-
að til menningarstarfsemi. Alþýðubókasöfnin í Svíþjóð
eru víðfræg með réttu, enda hafa þau haft mikinn fjár-
afla, og verið styrkt geysi mikið úr sjóðnum.
Oft hafa staðið upp menn og lastað menninguna og
þótt hún hafa lítið happasæl áhrif fyrir þjóðirnar. þetta
er þó eingöngu rétt þar, sem þröngsýnustu eiginhags-
munir ráða. Ef þær auðsuppsprettur sem framfarimar
opna, eru notaðar til andlegra þarfa og annara þjóðþrifa,
bætist sá hnekkir sem náttúran hefir beðið við rányrkj-
una upp, og verður til góðs fyrir þjóðina.
Ennþá eru Svíar nokkuð einir um þá réttanneðvit-
und, sem lýsir sér í áfengismálinu. Fyrst reyna þeir að
hindra alla misnotkun, svo að gróðinn verður líkastur
óhófsskatt, en síðan nota þeir þessa peninga til að menta
fólkið svo að það hætti ofdrykkju, ekki vegna lagaboða
ríkisins, heldur af innri hvöt.
Dr. Bratt benti mér á að hann þættist alls ekki hafa
fundið neina útflutningsvöru. það sem ætti við í Svíþjóð
og reyndist vel gæti átt miður vel við á íslandi, og er
bað satt.
En alstaðar mun samt sá drenglyndi hugsunarhátt-
ur hans eiga við, að þjóðfélagið noti sér ekki menningar-
ieysi þegna sinna til að græða á því.