Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1925, Blaðsíða 57
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
247
eru enskir lávarðar, fyrirmenn aðalsættanna, en auk þeirra
eru þar kjörnir fulltrúar fyrir hinn skoska og írska aðal.
Og ennfremur 26 „andlegir lávarðar“. það er að segja,
báðir erkibiskuparnir og 24 af biskupum ríkiskirkjunnar
bresku. Loks eru þar nokkrir lögfræðingar (Lords af
Appeal), sem fá sæti í deildinni æfilangt, en tignin gengur
ekki að erfðum fremur en hjá biskupunum. þegar lávarða-
deildin beitir dómsvaldi sínu, eru það þessii' lögfræðingar
og nefnd af öðrum lögfróðum lávörðum, sem skipa dóm-
inn. það getur þó skeð einstöku sinnum að öll deildin kveði
upp dóma.
Margir lávarðar, til dæmis herforingjar og sjófor-
ingjar, sem hafa hlotið aðalstign, koma aldrei eða sjaldan
á þingfundi. Ekki allfáir lávarðar eru landstjórar og em-
bættismenn í nýlendum Breta út um allan heim, og geta
því ekki á þing komið. Vald lávarðadeildarinnar hefir um
langan aldur átt rót sína að rekja til þess, að margir að-
alsmenn hafa verið afburðamenn, og ekki síst að það er
gamall siður að veita nokkrum helstu atkvæðamönnum
landsins aðalstign. þannig hafa lávarðarnir við og við,
fengið nýtt blóð, og það af því besta, sem til er í landinu.
(Framh.)