Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1997, Side 7

Andvari - 01.01.1997, Side 7
Frá ritstjóra Á þessu ári hefur íslenska þjóðkirkjan kjörið sér nýjan biskup, séra Karl Sigurbjörnsson, og tekur hann við embætti um áramót. Hans bíður meðal annars það hlutverk að hafa forustu um hversu minnst verður þúsund ára afmælis kristnitökunnar á íslandi. Þótt nokkrir kristnir söfnuðir séu starf- andi í landinu utan þjóðkirkjunnar, þar á meðal söfnuður sem er hluti kaþ- ólsku móðurkirkjunnar í Róm, hlýtur hin evangelíska lútherska þjóðkirkja að skipa langmest rúm í þessari minningu. Kristnitökuafmælið er sérstakt tilefni til að vega og meta stöðu hennar í þjóðlífinu, bæði sem stofnunar gagnvart ríkisvaldinu og sem andlegs afls, hver áhrif sá boðskapur sem hún heldur á loft hefur meðal landsmanna á okkar tímum. En svo vill til að einmitt á þessum síðustu misserum hefur þjóðkirkjan orðið fyrir miklum áföllum. Fleiri hafa sagt sig úr henni en nokkru sinni og skoðanakannanir sýna að æ fleiri aðhyllast aðskilnað ríkis og kirkju. Þegar þetta er ritað hefur nýlega farið fram könnun sem sýnir að meirihluti þeirra sem spurðir voru vill slíkan aðskilnað. Vissulega er almenningsálitið hverf- ult og ekki má leggja of mikið upp úr könnunum af þessu tagi. Vilji um að- skilnað ríkis og kirkju þarf ekki að stafa af andstöðu við kirkjuna, heldur því að fólk telji henni sjálfri fyrir bestu að vera ekki eins konar niðursetn- ingur hjá ríkisvaldinu. Fyrir utan þetta er aðskilnaður auðvitað miklu flóknara mál en þorri manna gerir sér grein fyrir. En viðvörun er þetta og helst greinilega í hendur við það að álit og virðing hefðgróinna stofnana er minni en fyrr. Engar stofnanir lifa á fornri frægð nú á dögum. Að þeim beinist hvassari gagnrýni í fjölmiðlum en áður og há embætti eru mönnum ekki lengur nein hlíf ef þeir misstíga sig. Enda er rétt að gera strangar kröf- ur til forustumanna, - vandi fylgir vegsemd hverri. I þessum efnum er að vísu skammt öfga á milli og auðvelt að leysa lágar hvatir almennings úr læðingi. En um þjóðkirkjuna er þess að gæta að bisk- up hennar var borinn þungum sökum um persónulega háttsemi jafnhliða og í beinum tengslum við að í ljós kom átakanlegt vanmegin kirkjustjórnar- innar til að taka á ágreiningsmálum. Þá leiðindasögu er þarflaust að rekja hér, en enginn sem lætur sig þjóðkirkjuna einhverju varða hefur komist hjá því að hafa þungar áhyggjur af framvindu innan hennar. Stjórnunarvand-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.