Andvari - 01.01.1997, Side 18
16
ÓLAFUR HALLDÓRSSON
ANDVARI
tekið drjúgan hluta af tíma hans og ugglaust meiri tíma en sjálft
námið. Það kom þó ekki að sök, því að hann var undrafljótur að til-
einka sér allt það efni sem krafist var til prófa. Tungumálanám var
honum leikur einn og hann hafði sjónminni svo óbrigðult að hann
átti aldrei í neinum vanda hvort sem hann ritaði íslensku eða önnur
þau mál sem hann hafði lært.
Einhvern hlut átti Einar skáld Benediktsson að því að Jón fór til
Færeyja snemma á námsárunum og dvaldist þar fáeinar vikur. Eftir
þá stuttu dvöl talaði hann og ritaði færeysku engu miður en þeir
Færeyingar sem best voru mæltir á tungu feðra sinna. Annar ávöxtur
af Færeyjadvölinni var löng grein: ‘Færeysk þjóðernisbarátta’, sem
birtist í Skírni 1919, bls. 246-286, þar sem meðal annars er fjallað um
það skeið í færeyskri menningarsögu þegar segja má að færeysk
tunga hafi barist fyrir lífi sínu, svo og það sem fram að þeim tíma var
að gerast í færeyskum bókmenntum. Greininni lýkur á hvatningu til
íslendinga að styðja Færeyinga í þjóðernisbaráttu þeirra, meðal ann-
ars með því að kaupa færeyskar bækur. í þessari grein er mikill fróð-
leikur dreginn saman, en greinin sjálf fróðleg til samanburðar við
það sem Jón skrifaði síðar á ævinni. Greinin er samin af tvítugum
manni og augljóst að hann er fullfær um að koma orðum að því sem
hann hefur að segja, en þau meistaratök sem hann náði síðar á efni
og stíl eru í þessari grein sem fyrsti gróandi, fyrirboði þroskans.
í Árnasafni
Haustið 1925 hafði Jón lokið bók um Jón Ólafsson frá Grunnavík,
ævi hans og ritstörf. Ekki veit ég hversu lengi hann hafði dregið að
allt það efni sem í þessari bók er komið í einn stað, en það er ekkert
smáræði. Bókinni lauk hann hér heima á íslandi og lagði hana fram
til doktorsvarnar við Háskóla íslands. Heimspekideild samþykkti 16.
nóvember 1925 að ritgerðin væri hæf til varnar, og fór doktorsvörn
fram 7. janúar 1926 í sal neðri deildar alþingis. Andmælendur voru
Sigurður Nordal og Páll Eggert Ólason. Bókin kom út í Kaupmanna-
höfn 1926, bæði í sérútgáfu og sem fimmta bindi í ritröð Fræðafélags-
ins: Safn Frœðafélagsins um ísland og íslendinga. Formáli er dag-