Andvari - 01.01.1997, Side 27
andvari
JÓN HELGASON
25
Þriðja hefti með greinargerð fyrir varðveislu Þorláks sögu og Páls
sögu, ásamt skrám, tókst Jóni ekki að ljúka.
Þessi tvö verk, íslenzk miðaldakvœði og Byskupa sggur, urðu út-
undan hjá Jóni sökum mikilla anna við önnur verkefni. Einar
Munksgaard, hinn ágæti danski bókaútgefandi, gaf út safn af ljós-
prentunum íslenskra handrita, Corpus codicum Islandicorum medii
Qevi, sem hófst með ljósprenti af Flateyjarbók 1930. Jón Helgason rit-
aði inngang að fjórum bindum í þessu safni og sá um útgáfu þeirra:
Morkinskinna (þ. e. GKS 1009 fol., 6. bindi, 1934), Óláfs saga ens
helga. MS Perg. 4to No 2 (15. bindi, 1942), The Arnamagnœan Man-
uscript 677, 4'°( 18. bindi, 1949) og Byskupa sggur, MS Perg. fol. No 5
(19. bindi, 1950). Önnur röð ljósprentana sem kom út hjá Munks-
gaard var Monumenta typographica Islandica, sex bindi með ljós-
prenti af fáeinum af elstu varðveittu bókum prentuðum á Islandi.
Jón ritaði inngang að tveimur bindum í þessari ritröð: Passio 1559 (4.
bindi, 1936) og Arngrímur Jónsson Gronlandia 1688 (6. bindi, 1942).
Þriðja röð ljósprentana sem kom út hjá Munksgaard var Manu-
scripta Islandica, ljósprentun íslenskra handrita í sjö bindum sem
komu út á árunum 1954-66. Jón ritaði inngang að öllum þessum
bindum og lagði mikla vinnu í að sjá til þess að prentun yrði eins
vönduð og mögulegt var með þeirri tækni sem þá var notuð, og var
mikið stríð að fá prentarann til að reyna aftur og aftur að ná betri ár-
angri, en prentarann nefndi Jón sjaldan annað þegar á hann var
minnst en helvítið hann Símonsen. Þegar þessari ritröð var hleypt af
stokkunum var, fyrir tilstilli Jóns Helgasonar, nýlega byrjað að taka
myndir af handritum í útfjólubláu ljósi með þeim árangri, að nú varð
sumt lesið sem mannleg augu höfðu ekki ráðið fram úr í margar ald-
lr- Hið fyrsta sem var unnið með myndum af þessu tagi, og fyrsta
bindi í þessari ritröð, var ljósprent af aðalhandriti Grettis sögu, AM
55la 4to, en í því handriti er einnig brot úr Bárðar sögu Snæfellsáss
°g Víglundar saga að mestu heil. Aðrar gersemar í þessari ritröð eru:
GKS 2845 4to (2. bindi, 1955), MS 9.10. Aug. 4to (Wolfenbuttelbók,
oheilt handrit af Eyrbyggja sögu og Egils sögu Skallagrímssonar, 3.
hindi, 1956), AM 674 A 4to (Elucidarius, 4. bindi, 1957), Hauksbók
(5. bindi, 1960), AM 468 4to (Reykjabók Njálu, 6. bindi, 1962) og
AM 519a 4to (Alexanders saga, 7. bindi, 1966).
Enn ein ritröð með ljósprentunum íslenskra handrita var Early Ice-
óndic Manuscripts in Facsimile, sem kom út hjá forlaginu Rosenkilde