Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1997, Blaðsíða 70

Andvari - 01.01.1997, Blaðsíða 70
68 SKÚLI PÁLSSON ANDVARI dæmi um orsakasamband: Ef rofanum á eldavélinni er snúið hitnar hellan og þá sýður vatnið í pottinum, hiti hellunnar er orsök þess að vatnið sýður. Um þetta gildir ákveðin regla á þá leið að þegar vatn hitnar nógu mikið þá hlýtur það að sjóða. Allt sem gerist í heiminum gerist í samræmi við slíkar reglur: suðan í pottinum, gangur himintunglanna, hjartsláttur mannsins. Ef við þekkjum slíkar reglur getum við ályktað af því ástandi, sem við sjáum í heiminum nú, hvernig hann verði í framtíðinni eða hvernig hann hefur ver- ið áður en við tókum að virða hann fyrir okkur. Vísindin snúast um það að gera sér skipulega grein fyrir slíkum reglum. Orsakalögmálið er raunar ekki almennt viðurkennt, það hefur satt að segja lengi verið ákaflega umdeilt. Á 18. öld setti Hume fram fræga gagn- rýni á orsakalögmálið og sú gagnrýni varð síðan kveikjan að heimspeki- kerfi Kants. Á þessari öld hafa efasemdir um orsakalögmálið komið frá eðlisfræðingum sem hafa komist að því að ákveðin fyrirbæri á sviði atóm- anna virðast ekki vera í samræmi við orsakalögmálið. Þetta verður Brynj- ólfi tilefni til umræðu um skammtafræði. Hann reynir að sýna fram á að or- sakalögmálið hljóti þrátt fyrir allt að gilda á sviði atómanna líka, frá því geti ekki verið neinar undantekningar. Rök hans fyrir þessari sterku trú á orsakalögmálið snúast um að það sé forsenda fyrir þekkingu okkar, ef við gerðum ekki ráð fyrir að heimurinn sé í föstum skorðum gætum við ekki treyst þekkingunni. Ef við gerum ráð fyrir þeim möguleika að sömu að- stæður leiði af sér eitthvað annað í dag en í gær myndi það kippa grund- vellinum undan öllum skoðunum okkar á heiminum. Meira en það: athafn- ir okkar byggjast á trú á orsakalögmálið. Bara með því að snúa rofanum á eldavélinni til að sjóða vatn sýnum við traust okkar á að heimurinn hafí sama gang og venjulega. Brynjólfur reynir að sýna fram á að sama gildi í vísindum. Þegar vísinda- maður leiti skýringa þá geri hann ráð fyrir að fyrirbærin sem hann rann- sakar eigi sér einhverja orsök. Ef vísindamaður trúi því ekki að allir hlutir eigi sér orsök þá hafi hann enga ástæðu til að leita skýringa og sennilega væri hann enginn vísindamaður. Stundum tekur Brynjólfur þannig til orða að orsakalögmálið sé okkur lífsnauðsyn. Ef ég trúi ekki að eldurinn brenni, að maturinn næri, að steinninn sem ég sleppi falli og svo framvegis þá get ég ekki lifað í þessum heimi. Þessi lífsnauðsyn, segir hann, gerir orsakalögmálið að því öruggasta sem við vitum og þetta orðar hann þannig að lífsnauðsyn verði röknauð- syn. Þessi röksemdafærsla er að forminu til það sem kallað hefur verið for- skilvitleg röksemd, hún reynir að sýna fram á skilyrði fyrir þekkingu. Að þessu leyti minna rök Brynjólfs fyrir orsakalögmálinu á vörn Kants gegn gagnrýni Humes. Samkvæmt þessum skilningi á orsakalögmálinu má reikna út hvað gerist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.