Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1997, Side 83

Andvari - 01.01.1997, Side 83
andvari FINNUR MAGNÚSSON 81 hann fyrir hverja sýslu og gat um hvað þar væri að finna. Þetta rit er varð- yeitt í handritasafni Nationalmuseums í Kaupmannahöfn og kom ekki fyrir almannasjónir fyrr en á síðari hluta þessarar aldar. Á grundvelli þess gengu 1 gildi fyrirmæli um friðun fornleifa á íslandi árið 1817 því að hann talaði um að fornminjar „burde fredes" eða „conserveres for Eftertiden“.10 Hinn 28. mars 1817 skrifaði fornminjanefndin kansellíinu varðandi forn- winjar á íslandi og varðveislu þeirra. í upphafi bréfsins er gerð grein fyrir því að skýrslur hafi ekki borist vegna styrjaldarinnar. Engu að síður sé nefndinni kunnugt um „Mindesmærker“ á íslandi sem hafi varðveist til þessa dags.11 Síðan er farið sólarsinnis um landið og byrjað á Suðuramtinu °g Snorralaugar í Reykholti getið. í Vesturamtinu voru Þingvellir á Þórs- uesi nefndir og þar talað um dómhring og blótstein. Á Borg á Mýrum var nefndur „en meget merkværdig Runesten" yfir hetjunni Kjartani Ólafssyni frá árinu 1003 eða 1004. Einnig er getið um rúnastein í Hvammssókn í Norðurárdal. í Norður- og Austuramtinu er Borgarvirkis í Víðidal getið. Því næst er nefndur rúnasteinn á Munka-Þverá yfir Vigdísi Árnadóttur. Þá talað um rúnasteina í Grenjaðarstaðarkirkju og Múlakirkju og rúnaletur á þverslá í Þverárkirkju í Laxárdal, og í Norður-Múlasýslu er nefndur merkilegur Iegsteinn í kirkjunni á Hofi í Vopnafirði. Bréfinu lauk með því að leggja til við kansellíið að hafist verði handa um friðun fornminja í land- inu og amtmönnum falið að huga að varðveislu þeirra handa óbornum hynslóðum. Einnig skyldu þeir gæta þess að gamlir munir og myndir sem teþast kirkjueign verði hvorki eyðilagðar né seldar nema biskup og stift- amtmaður leyfi.12 Undir þessu bréfi eru sjö nöfn og nafn Finns Magnússonar síðast. Það er htlum vafa undirorpið að Finnur hefir verið aðalhöfundur þessa umburðar- Þréfs, jafnvel orðfærið bendir til þess. Bréfið varð til þess að farið var að Senda íslenskar fornminjar til danska þjóðminjasafnsins fyrir atbeina Finns °8 þekkingar hans á fornminjum á íslandi. í dag tala menn með eftirsjá um að svo fór, en hitt ber einnig að hafa í huga að óvíst er hver örlög þeirra muna, sem nú eru varðveittir í danska þjóðminjasafninu, hefðu orðið ef þetta björgunarstarf hefði ekki komið til. Kansellíið gaf einnig út fyrirmæli um friðun íslenskra fornminja og þarf Varla að fara í grafgötur um að þau voru runnin undan rifjum Finns og fornminjanefndarinnar. Hinn 19. maí 1817 voru tíu fornleifar friðaðar á ís- Undi. í þeim hópi var Borgarvirki, dómhringur á Þingvöllum á Þórsnesi og Suorralaug í Reykholti.13 Islendingar brugðu skjótt við að svara kalli fornminjanefndarinnar. Á frmdi hennar 2. október 1817 lágu fyrstu skýrslurnar fyrir og Finnur hafði gert útdrætti úr þeim á dönsku. í upphafi voru þeir vandlega unnir, en þeg- ar frá leið var verulega slakað á. Næstu árin barst verulegt magn skýrslna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.