Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1997, Side 96

Andvari - 01.01.1997, Side 96
94 AÐALGEIR KRISTJÁNSSON ANDVARI Eftir þetta var stutt í endalokin á stjórnmálaferli Finns. Þegar leið að þeim degi að endanlega yrði gengið frá alþingistilskipuninni komust Islend- ingar í Kaupmannahöfn á snoðir um að kansellíið mundi ekki ætla að fall- ast á breytingartillögur Hróarskelduþings. Fundur var haldinn 25. febrúar 1843 og samin bænarskrá til konungs þar sem farið var fram á þær breyting- ar sem fundarmönnum þótti mestu skipta. Þegar atkvæði voru greidd um „frjálst kjörgengi“ til alþingis urðu þeir Finnur og Grímur Jónsson í minni hluta og varðandi fleiri atriði stóðu þeir nálega einir uppi. Allt kom fyrir ekki. Kansellí og konungur daufheyrðust við þessari bænarskrá og hinn 8. mars birtist úrskurður konungs um hið endurreista alþingi þar sem tillög- um embættismannanefndarinnar var fylgt nær óbreyttum. Finnur varð þeirri stund fegnastur þegar hann var laus við allt sem hét stjórnmálavafstur. Þessi léttir gægist fram í bréfum hans til Bjarna Þor- steinssonar t. a. m. 5. maí 1846. Bjarni hafði þá setið á hinu fyrsta alþingi sem konungkjörinn og var valinn til forseta, en lét sér fátt um finnast. Þetta skildi Finnur vel og sagði: „Ekki undrar mig yfir að þú viljir leysast frá al- þingisstörfunum, þótt þau hafi farist þér vel. Eg sneiði nú að öllu leyti frá íslenskri pólitík, og hefi meir en nóg af þeirri slesvig-holsteinsku“.51 Finni gast ekki að stjórnmálaafskiptum yngri kynslóðarinnar, t. a. m. hvernig Jón Sigurðsson reið úr hlaði út á vígvöll íslenskra stjórnmála. Jón skrifaði bæði um verslunar- og skólamál og var ómyrkur í máli auk þess sem hann skrifaði um hið væntanlega alþingi. Finnur vék og að flokka- dráttum íslenskra stúdenta í Höfn í bréfi til Bjarna 28. september 1844 með þessum orðum: Álit mitt um J. S. pólitísku ritgjörðir og þenkingarhátt er þínu samdóma; orðatiltæki hans virðast mér oft of harðsnúin, - en víst er hann á margan hátt duglegur; satt mun það vera að skólinn raunar á mikið hjá stjórninni, en nokkuð mun samt ýkt. Eg hefi aungvan þátt í hérverandi landa vorra pólitísku félögum eða ritgjörðum þótt þeir skipti sér í tvo flokka; í hvörn þeirra sem eg kæmi yrði eg álitinn eins og Sál milh spámannanna. Að eg er óskaðlegur orðinn in politicis, mun nú hafa hvatt þá til að prísa mig um of in literariis; aðra orsök veit eg ekki til þess veðraskiptis (sem annars er vanalegt þar sem Aura popularis byltir sér um loftið) og aungvan veginn ætlast eg til að hún verði stöðugri við mig en aðra.52 í öðru bréfi til Bjarna Þorsteinssonar 29. september 1846 vék Finnur að Jóni Sigurðssyni og upphafi þingmennsku hans. Tilefnið var umræða um veislur þær sem íslendingar í Höfn héldu Jóni þegar hann fór heim til hins fyrsta endurreista alþingis og þegar hann kom aftur til Hafnar og sagði af því til- efni: „[. . .] vart má álíta þá umskrifuðu veislu við heimkomu hans sem í raun og veru pólitíska; stúdentar hér bera virðing fyri[r] J. S. föðurlandsást, mælsku og einurð; það vildu þeir láta í ljósi við heimkomu hans, eins og þeir áður höfðu gjört við brottför hans héðan. - Eg sneiði mig nú annars
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.