Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1997, Page 121

Andvari - 01.01.1997, Page 121
andvari í HEIMANA NÝJA 119 Árekstur mannheims og náttúruheims veldur sársauka, trega, þrá og óróa hjá þeim sem lenda í báðum heimum. Þannig fer stúlkunni í þulunni „Gekk eg Upp í Álfahvamm“ (52-3) sem verður ástfangin af huldusveini og tekur þátt í álfaveislu um miðja nótt en verður síðan að halda til síns heima. Þeirri þulu lýkur á þekktu viðlagi: „eg get ekki sofið fyrir söngvunum þeim.“ Sá sem hefur lent milli heima fær aldrei ró. Slíkt rof verður í flest- um þulum Theodoru. Eftir að hafa náð algleymisástandi í draumi vaknar ljóðmælandinn og þá „liggur í rústum draumahöll“ (61). Algengasta afbrigðið er að ljóðmælandinn hafi átt glaðar stundir í nátt- úruheiminum forðum daga en sé nú í útlegð í mannheimum, rétt eins og selurinn sem mænir upp til dala er alstaðar í útlegð. Pannig fer þeim sem fór til Logalanda „þar sem eldurinn aldrei deyr / og allar klukkur standa“ (54) en er síðan fastur „að dröngum“(55) og heyrir „Brimsins [. . .] hróp og dár / hlakka í klettaþröngum.“ 35 Sama stef er á ferð í sögu Kalastaða- Gunnu sem fyrrum hét Fagurkinn (62-3), Birni á brotnu skipi sem missti unnustuna til annars manns (67-8) og í yngstu þulunni segir: „Horfið er mér gullið gljátt, / sem gaf mér drottinn forðum“(69). Par talar hún fyrir munn sírenu á eftirlaunum sem áður lokkaði sjófarendur á sker. Sérstak- lega harmrænt er stefið þegar mælt er fyrir munn konu sem missir riddara sinn og fák fyrir slysni og röltir nú ein norður og niður og segir: „í brúðar- h'ninu byrgi eg mig / þá blása veðrin ströng.“(65)36 í einni þulu er fjallað um mismunandi hlutskipti karla og kvenna um ald- ir. Þar er lýst víkingaferð og útþrá drengs sem vill „reyna afl við úfinn sjá. Konan sem hefur orðið fylgist með honum með aðstoð töfraglers sem brotnar síðan og þá verður hennar hlutskipti „að sitja ein hjá köldum sund- um.“ Hún er, hann gerir. Konan er í útlegð í mannheimi en karlmaðurinn, Valur hinn víðförli,37 hverfur yfir í náttúruheiminn. Örlög hennar eru söm °g annarra sem hafa séð í báða heimana: „mín er iðja að mæna og þrá, / þó meitli úr klöppum aldan flá, / áratugina tvo og þrjá / talið hef eg svona. / Enn er eg kyrr / og enn er eg að vona.“(58-9) Annað meginstef í þulum Theodoru er ferðalag frá mannheimi til náttúru sem oft er tákn uppreisnar gegn mannheiminum. Frá því sagði í þulunni um tunglið þar sem ljóðmælandinn tekur sér far með öðrum. í annarri þulu er hún numin af Hjörvarði konungi brott úr Naumudal en sú ferð endar illa °g sú sem þar á orðið endar með að klöngrast um „Nástrandir og tæpar skriður“(65). Tvisvar er riðið út til dularfullra staða, til Lambahlíða (50) og til Logalanda (54). Eins og áður sagði getur töfragler líka orðið leið til að fara í ferð með víkingum „fyrir handan höfin blá“(58). í einni þulu er geng- ið upp í Álfahvamm (52), í annarri „upp á hólinn“ (69) en í þeirri þriðju UPP á Gljáhnjúk. Par á að finna lundinn helga og „þetta eina, er allir þrá / °§ enginn þekkir nafnið á; / hjá fjöldanum ei það finna má“(60). Markmið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.